Rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson býður til sögustundar við varðeld á Borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 31. maí.
Hægt verður að ylja sér með heitu kakói á meðan Ævar Þór les upp úr hinum sívinsæla bókaflokki sínum Þín eigin saga, þar sem lesendur geta ráðið hvað gerist næst. Sögustundinni lýkur með upplestri upp úr glænýrri og spennandi bók eftir Ævar, Skaðræðisskepnum, sem gerist í sveit þar sem dularfull vera er á sveimi.
Sögustundir við varðeld er viðburðaröð á Borgarbókasafninu Gerðubergi þar sem leitast er við að skapa eftirminnilega söguupplifun í takt við veður og vinda. Viðburðaröðin hlaut styrk frá Bókasafnasjóði og hefur frá upphafi átt miklum vinsældum að fagna.
Ævar Þór Benediktsson er einn ástsælasti og afkastamesti höfundur landsins á sviði barna- og unglingabókmennta og hefur sent frá sér hátt í fjörutíu bækur. Fyrir verk sín hefur hann hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir bókina Skólastjórinn, sem kom út á síðasta ári. Bækur Ævars hafa verið þýddar og gefnar út í Bandaríkjunum, Danmörku, Svíþjóð og Rússlandi.