Norðmenn ætla að ráðast í mestu breytingar á því hvernig þeir vinna með reglugerðir og tilskipanir Evrópusambandsins frá því samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið tók gildi 1994.
Þessu greindu Espen Barth Eide utanríkisráðherra og Cecilie Myrseth viðskiptaráðherra frá á blaðamannafundi í dag.
Norska ríkisstjórnin ætlar að hefja vinnu við innleiðingu EES-mála fyrr en áður hefur verið. Hún ætlar einnig að skýra forgangsröðun betur en áður og auka skilvirkni í stjórnsýslu. Þessu til viðbótar á að ráðast í meiri stafræna umbreytingu.
Eide sagði meðal annars að Norðmenn hygðust hefjast handa meðan Evrópusambandið væri að ræða reglugerðir en ekki þegar búið væri að samþykkja þær eins og nú er. Hann sagði að þetta myndi auka áhrif Norðmanna á reglugerðir og tilskipanir sem ætti að taka upp í gegnum EES-samstarfið.