Aðalmeðferð í svokölluðu Edition-máli heldur áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ming Ting Mancel er ákærð fyrir að bana þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í Reykjavík.
Eiginmaður hennar og dóttir létust á Edition-hótelinu 14. júní 2025. Mancel er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns.
Mancel sat í gæsluvarðhaldi í 12 vikur vegna rannsóknar málsins sem teygðist langt út fyrir landsteinana, allt til eyjaklasans Nýju Kaledóníu í Kyrrahafi, sem tilheyrir Frakklandi.
Aðalmeðferð hófst á föstudag og heldur áfram í dag. Mancel gaf langa skýrslu á föstudag og í dag stendur meðal annars til að læknar og lögreglumenn úr tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu stígi í vitnastúkuna, að sögn Karls Inga Vilbergssonar héraðssaksóknara.
Hlé veðrur á aðalmeðferð á morgun, 17. júní, en verður fram haldið á fimmtudag. Búist er við að dómur verði kveðinn upp innan fjögurra vikna.