Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar lauk nýverið og í ljós kom áberandi aukning á Suðurlandi, Norðurlandi vestra, Norðausturlandi og Austurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúrustofnun.
Metfjöldi rjúpna mældist í Dölunum á Vesturlandi, á Skaga á Norðurlandi vestra og á Bakkafirði, Tjörnesi og í Kelduhverfi á Norðausturlandi.
Heildarfjölgun rjúpna var um 7% og er talið að hana megi rekja til fækkunar fálka hér á landi.
Rjúpan er talin að vori til að meta ástand stofnsins áður en veiðiheimildir eru gefnar út að hausti. Sölubann á rjúpu er í gildi hér á landi og óheimilt er að flytja út, bjóða til sölu eða selja rjúpu og rjúpnaafurðir.
Náttúruverndarstofnun hefur sent veiðistjórnunartillögur fyrir rjúpu til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sem byggja á stofnmati Náttúrufræðistofnunar. Þær eru byggðar á stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu sem var gefin út árið 2024.
Stofnunin leggur til að veiði verði heimil frá og með föstudegi til þriðjudags innan tímabils hvers veiðisvæðis, frá 23. október. Því yrði ekki leyfilegt að veiða rjúpu miðvikudaga og fimmtudaga.
Ráðherra ákveður veiðitímabil rjúpu og staðfestir það almennt að hausti.