Alþingi samþykkti í dag tillögu forsætisnefndar um að skipa fimm manna framkvæmdanefnd sem á að undirbúa hátíðahöld í tengslum við 1100 ára afmæli Alþingis.
Í greinargerð tillögunnar segir að upphaflega hafi verið rætt um að framkvæmdanefndin yrði skipuð fulltrúum þingflokka en horfið hafi verið frá þeirri hugmynd. Þess í stað verður leitað að fólki með reynslu af undirbúningi viðburða.
Nefndin verður skipuð strax í haust en mesta vinnan fer fram árin 2029 og 2030 og er ráðgert að framkvæmdastjóri verði skipaður og hefji störf í ársbyrjun 2029. Launakostnaður nefndarinnar og framkvæmdastjóra er áætlaður 52 milljónir króna. Því til viðbótar á að eyrnamerkja 750 milljónir til að standa straum af kostnaði við hátíðarhöldin.
Framkvæmdanefndin fær nokkuð frjálsar hendur við skipulagninguna en lýðræði, þátttaka almennings og fræðsla og miðlun um sögu þings og þjóðar eiga að vera í fyrirrúmi. Forsætisnefnd Alþingis þarf þó að samþykkja tillögur nefndarinnar.
Forsætisnefnd gaukar þó þeirri hugmynd að óskipaðri framkvæmdastjórn að árið 2030 verði einnig 50 ár liðin frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands og 100 ár frá fæðingu hennar. „Ef til vill verður mögulegt að flétta þau tímamót inn í hátíðahöld í tilefni af 1100 ára afmæli Alþingis,“ segir í greinargerðinni.