Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli fagnar 20 ára afmæli, dagskrá helgarinnar er fjölbreytt og ókeypis á alla viðburði. Hátíðin hófst á miðvikudaginn og lýkur á morgun. Í gærkvöldi var súpurölt á milli hverfa á Hvolsvelli þar sem boðið var upp á rjúkandi heita kjötsúpu.
Svo er heilmikil dagskrá í dag. Sigmundur Páll Jónsson er markaðs og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra.
„Í dag er svo fjölskylduhátíðin eftir hádegi og þar verður fjöldinn allur af skemmtiatriðum. Aron Can og Lína langsokkur og allskonar skemmtileg atriði. Svo er í kvöld er brekkusöngur með Guðrúnu Árný og trúbadorinn okkar, hann Hlynur Snær verður með henni þar, sem heiðursgestur. Svo verður mikil flugeldasýning og endað með balli með Stuðlabandinu og Páli Óskari og Frikka Dór,“ segir Sigmundur.
Á morgun verður svo menningarganga á Hvolsvelli með Ísólfi Gylfa Pálmasyni, fyrrverandi sveitarstjóra og þingmanni. Brúðubílinn mætir líka á Hvolsvöll og svo verður Sigrún Jónsdóttir, listakona með opið hjá sér í Galleríinu sínu í Fljótshlíð, en það er hægt að sjá alla dagskrá hátíðarinnar og kjötsúpuhátíð.is
En hvað reiknar Sigmundur að það fari mikið magn af kjötsúpu ofan í heimamenn og gesti þeirra um helgina?
„Það eru örugglega allavega yfir þúsund lítrar myndi ég giska á því það eru allavega sjö súpustaðir, sem voru með súpu í gærkvöldi og svo miðað við magnað hugsa ég að það verði þúsund lítrar ef ekki meira,“ segir Sigmundur.
Komið og sjáið skemmtilega bæinn okkar. Hann er allur í skreytingum og fígúrum og njótið helgarinnar með okkur.