Pílagrímaganga verður farin frá Ólafsvallakirkju á Skeiðum í Skálholt á sunnudag í tengslum við Skálholtshátíð. Gangan hefst klukkan 07:00 og stendur til klukkan 14:00.
Hluti göngunnar er genginn í kyrrð og við hverja áningu er stutt íhugun, bæn eða ritningarlestur. Fólk gengur á sínum hraða í þögn eða spjalli, allt eftir vilja og þörf hvers og eins. Göngustjórar pílagrímagöngunnar eru prestarnir sr. Axel Á. Njarðvík og sr. Eiríkur Jóhannsson.
18 kílómetra ganga
„Gangan er um 18 km frá Ólafsvallakirkju og heim í Skálholt. Pílagrímaganga er ætíð leið að helgunarferli og í senn meðferðarform sálarinnar. Það er eitthvað sem er í okkur öllum sem leitast við að komast í snertingu við hið heilaga. Spurningin er því hvar hið heila finnur okkur eða hvernig kemur hið heilaga til okkar. Af þessu hafa sprottið sjö lyklar pílagrímsins sem eru: Frelsi, einfaldleiki, rósemi, kyrrð, æðruleysi, samkennd og andlegur vöxtur. Þessir lyklar vitja oft þeirra sem fara í spor pílagríma aldanna,” segir sr. Axel.
15 til 30 manns
Sr. Axel segir erfitt að giska á hversu margir koma í gönguna en hann segir að það geti verið allt frá fimmtán upp í þrjátíu manns en veðrið ráði væntanlega mestu um þátttökuna. Hann hvetur fólk til að vera í góðum skóm og skjólfatnaði og að hafa nesti með sér.
Skálholtshátíð 70 ára
Skálholtshátíð fagnar nú sjötíu ára afmæli. „Já, 70 ára afmæli fylkja oft fólki saman en Skálholtshátíð sem slík er sjötug um þessar mundir. Nýtt og annað fólk fagnar þessum 70 árum og minnist með þeim hætti hátíða fyrri ára. Þau eru orðin fá sem skunduðu í Skálholt árið 1956”, segir sr. Axel. Pílagrímar frá Reynivallakirkju og Ólafsvallakirkju sameinast svo í göngu inn kirkjugólf Skálholtsdómkirkjunnar sunnudaginn 19. júlí við upphaf hátíðarguðsþjónustu klukkan 14:00 við söng pílagrímsins; Fögur er foldin þar sem skírnarheitið er endurnýjað við skírnarfontinn.