15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

Gunnar, Kristján og Árni hafa það nokkuð gott
Mynd: Samsett
Heimildin hefur tekið saman sinn árlega Hátekjulista en á honum er að finna tekjuhæstu 1% Íslendinga fundin með ítarlegri leit ritstjórnar. Auk þess tekur hann ekki eingöngu mið af launatekjum heldur einnig fjármagnstekjum, svo sem arðgreiðslum til eigenda fyrirtækja, en oft eru launatekjur lítill hluti raunverulegra tekna.
Meðal þess sem Heimildin hefur gert er að birta tölurnar og nöfnin eftir sveitarfélögunum.
Í 1. sæti í Garðabæ er Aðalheiður Gunnardóttir en hún er í 5. sæti á heildarlistanum. í 15. sæti er svo Pétur Bjarnason en hann er í 88. sæti á heildarlistanum.