Úkraínuher gerði árásir í Belgorod-héraði í gær. Fjórir voru drepnir í þeim árásum, þar á meðal unglingsstúlka, eftir því sem yfirvöld í héraðinu greina frá. Þá gerði Úkraínuher einnig drónaárás á Saratov-hérað sem liggur að landamærum Kasakstan og Udmurtia-hérað sem er í yfir eitt þúsund kílómetra fjarlægð frá víglínunni.
Árásir Rússa voru í Dnipropetrovsk, Zaporizhzhia, Kherson og Kharkiv.
Bæði rússnesk og úkraínsk yfirvöld hafna því að herir landanna geri árásir á almenna borgara.
Hátt í 20 árásir á Wildberries
Úkraínuher gerði árás á vöruhús netverslunarinnar Wildberries í Vladimir-héraði um 180 kílómetra austur af Moskvu í nótt. Eldur braust út og starfsfólk þurfti að yfirgefa bygginguna, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Héraðsstjórinn Alexander Avdeyev segir að árásin hafi verið gerð með drónum og einn maður hafi slasast.
Úkraínuher hefur gert árásir á um 20 mismunandi rekstrareiningar Wildberries víða í Rússlandi og á Krímskaga síðan um miðjan júlí.