Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, hefur rekið yfirmann úkraínska hersins, Oleksandr Syrsky.
Brottvikning hans kemur einungis nokkrum dögum eftir að varnarmálaráðherra, Mykhailo Fedorov, var leystur frá störfum en sú ákvörðun hrinti af stað mótmælum um allt land þar sem þess var krafist að Syrsky yrði látinn fara. Eftir nokkra daga af stanslausum fundum með tugum æðstu herforingja landsins lét Zelensky undan.
Samband Fedorovs og Syrsky var stirt og er það talin ástæða þess að Zelensky vék Fedorov úr ríkisstjórninni.
Í frétt BBC kemur fram að Fedorov, sem er 35 ára, hafi verið lofaður víða fyrir að hleypa nýju lífi í ráðuneytið, umbreyta hernum og leiða baráttuna gegn spillingu.
Syrsky, sem er 60 ára, er af mörgum í Úkraínu talinn vera herfylkingarstjóri af gamla sovéska skólanum sem var tregur til að ráðast í róttækar breytingar innan hersins.
Í færslu á samfélagsmiðlum í dag þakkaði Zelensky Syrsky fyrir framlag hans við að verja höfuðborgina Kænugarð með góðum árangri á fyrstu dögum allsherjarinnrásar Rússa árið 2022, auk annarra hernaðaraðgerða.
Mykhailo Drapatyi, sem er reynslumikill herhöfðingi, tekur við embættinu af Syrsky.