Í færslu á X segir Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti að Rússar hafi notað yfir 39 eldflaugar og 120 árósardróna í árásum á orkuinnviði og aðra mikilvæga innviði bæði í höfuðborginni Kænugarði og Kharkív. Í færslunni skrifar hann að árásirnar hafi beinst sérstaklega gegn þeim innviðum sem vopnahlé Bandaríkjaforseta eigi að ná yfir.
Selenskí skrifar að Rússar hafi aldrei áður sýnt Bandaríkjamönnum jafn áberandi virðingarleysi og nú.
„Rússland sér yfirlýsingar Bandaríkjaforseta ekki sem sterkar,“ skrifar Selenskí og bætir við að fyrir utan þau 600.000 sem séu án rafmagns sé líklegt að rafmagnsleysið gæti orðið enn víðtækara.
„Við biðjum Bandaríkin og alla í heiminum sem ekki líta hingað með blinda auganu að bregðast við og gera það af krafti. Rússar hafa klúðrað tækifærinu til að draga úr spennu og hafa augljóslega valið að halda áfram þessu brjálaða útrýmingarstríði.“
Tvö látin í Kænugarði
Meðal annars var skotið á Darnytska hitaveitu- og raforkuverið sem sér Kænugarði bæði fyrir hita og rafmagni. Selenskí segir að engin viðvörun hafi borist áður og þá hafi íbúðarhús einnig orðið fyrir árásum.
Að sögn Vítalí Klitskó, borgarstjóra Kænugarðs, létust tveir og tuttugu og einn særðist í eldflaugaárás á fjölbýlishús í borginni seint í gærkvöldi og að „nokkrar orkustöðvar“ hafi orðið fyrir árásum.
Yfirvöld hvöttu íbúa til að halda fyrir í neyðarskýlum þegar rauð viðvörun var gefin út vegna eldflaugaógnar.
Ráðist á járnbrautakerfið
Þá voru einnig gerðar árásir á úkraínska járnbrautarinnviði en Oleksandr Pertsovskí, forstjóri lestarfyrirtækis úkraínska ríkisins, sagði að um „stórfellda bylgju árása“ hefði verið að ræða.
Engin slys urðu á fólki en árásirnar náðu meðal annars til svæða nálægt Kharkív, Kænugarðs og Vinnytsia-héraðs. Járnbrautarkerfið gegnir lykilhlutverki í samgöngum í stríðinu, ekki síst þar sem skemmdir á vegum og höfnum takmarka ferðir fólks, en kerfið tengir saman stærstu borgir landsins.
Rússar gerðu einnig drónaárás á olíustöð í borginni Lutsk í vesturhluta Úkraínu þar sem eldur kviknaði. Úkraínumenn hafa að eigin sögn ráðist á rússneskar olíuhreinsistöðvar síðan Trump lýsti yfir orkuvopnahléi um helgina, en aðeins til að svara árásum Rússa.
Selenskí mun síðar í dag eiga fund með Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands í Downingstræti 10 í Lundúnum þar sem þeir munu meðal annars ræða hraðari afhendingu loftvarnabúnaðar til Úkraínu.