Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ljóst að það verði hnífjafnt á munum í þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Aðspurð segist hún vona að niðurstaðan kljúfi ekki þjóðina eða skilji eftir sig sár sem ekki muni gróa.
„Ég vona það ekki. Ég upplifi þetta ekki sem sárindi. Ég veit að sumum hefur verið heitt í hamsi en nú hef ég setið með stórum hópi fólks víðs vegar um landið og fólk er alveg opið fyrir mismunandi niðurstöðu.“
Hún segist meðvituð um það að fólk víða um land, einkum á landsbyggðinni, hafi áhyggjur í tengslum við landbúnaðar-, sjávarútvegs- og auðlindamál. Stjórnvöld muni taka tillit til þeirra áhyggna verði svarið já.
Ég heiti því að við munum fara vel með þessa málaflokka og hafa þessar áhyggjur í farteskinu.
Spurð hvort Evrópusambandsumræðan verði úr sögunni verði svarið nei, segir Kristrún að það verði allavega ekki farið í slíka vegferð á meðan hún stýrir núverandi ríkisstjórn.
Þurfti svigrúm fyrir aðra til að taka þátt
Hún segist ótrúlega ánægð með það hvað kjörsóknin er mikil.
„Það sýnir að fólk hefur áhuga á þessu máli. Þetta er vegferð sem fólk hefur skoðun á og það hefur skilað sér,“ segir hún.
Það voru margir sem töluðu um það að þú hefðir komið seint inn í þessa baráttu, hefðirðu átt að stíga fastar inn í hana fyrr í sumar?
Ég held að fólk muni hafa alls konar skoðanir á því hvernig ég haga mér í þessu máli. Ég trúði því innilega og geri það enn að það þyrfti að vera svigrúm fyrir aðra til að taka þátt. Vissulega er ríkisstjórnin að setja þetta mál á dagskrá en þetta á að vera mál sem á að geta farið yfir pólitík, flokkspólitík það er að segja (...) Ég hef bara tekið mér það hlutverk sem mér hefur þótt eðlilegt og tel mig hafa gert það ágætlega.
Ekki fengið hótanir á sama stigi og Þorgerður
Kristrún segir umræðuna heilt yfir hafa verið málefnalega og góða en vissulega hafi verið punktar sem hún hafi ekki verið sátt við.
Ég held að við þurfum öll að taka það til okkar hvort okkur finnist þessi þróun og harka sem stundum birtist vera í lagi en langflestir Íslendingar hafa gert þetta bara alveg ótrúlega vel.
Spurð hvort hún hafi fengið hótanir í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar líkt og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, segir Kristrún Þorgerði klárlega hafa fundið fyrir meiri hita. Sjálf hafi hún ekki upplifað hótanir á því stigi sem Þorgerður hafi fengið.
„Ég fæ auðvitað ýmislegt sent. Það er því miður orðið það sem fylgir því að vera í þessu starfi en ég hef aldrei upplifað mig neitt sérstaklega óörugga.“
Hún segir öryggisumhverfi ráðamanna hér heima og úti í heimi hafa breyst mikið á undanförnum árum. Kerfið hér á Íslandi sé gott og vel sé passað upp á öryggi ráðherra.
En ég veit að það hefur mætt mikið á henni og það hefur reynt á.