Litli spítalinn ehf. hefur tekið á leigu neðstu hæðir Háaleitisbrautar 68, sem voru áður að hluta höfuðstöðvar Landsvirkjunar. Ætlunin er að reka margþætta heilbrigðisþjónustu. Þar á meðal er svokölluð smáslysamóttaka, millistig bráðamóttöku og Læknavaktarinnar.
Sjúkratryggingar upplýstu heilbrigðisráðuneytið um ósk Litla spítalans um smáslysamóttöku því erindi um slíkt hefur ekki áður borist. Slík þjónusta hafi áður verið veitt innan spítala, segir Sigurður Helgi Helgason forstjóri. Litli spítalinn óskaði eftir heildstæðum samningi sem er í samræmi við stefnu Sjúkratrygginga um að semja við stærri aðila.
„Við viljum styðja við kerfið og létta á heilbrigðiskerfinu okkar,“ segir Guðrún Ása Björnsdóttir, læknir og framkvæmdastjóri Litla spítalans.
„Svona skyndimóttaka eða smáslysamóttaka er mikilvægur hlekkur í heilbrigðiskerfi Norðurlandanna.“
Enn langt í opnun
Oft hefur komið fram að margir sjúklingar verði að bíða klukkustundum saman á bráðamóttöku Landspítalans. Guðrún Ása segir öflugan hóp sérfræðinga og heilbrigðisstarfsfólks á bak við Litla spítalann með reynslu hvaðanæva að. Einn þeirra er Hilmar Kjartansson, fyrrverandi yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans.
„Við höfum sérstaklega verið að horfa til Svíþjóðar þar sem svona móttaka hefur reynst alveg afskaplega vel, hefur stytt biðtíma,“ segir Guðrún Ása.
Í svari heilbrigðisráðuneytisins við erindi Sjúkratrygginga um Litla spítalann í síðustu viku er bent á nokkra þætti þessu til fyrirstöðu, til dæmis að ekki sé svigrúm til að bæta við þjónustu vegna halla.
Gert er ráð fyrir að fyrsta athugun Sjúkratrygginga á þörfinni og ávinningi skyndimóttöku taki margar vikur.
„Auðvitað skiptir máli að vinna þetta vel og í samvinnu við alla aðila. Og við opnum bara þegar þetta er allt saman tilbúið,“ segir Guðrún Ása.