Arctic Fish ætlar að fjarlægja sjókví úr fjöru í Patreksfirði í næstu viku eftir rúman mánuð í fjöruborðinu. Reglulega berast tilkynningar til Landhelgisgæslunnar um kvíar á reki vegna siglingahættu.
Flothringur á reki getur hvolft bátum
Einar Helgason formaður strandveiðifélagsins Króks á sunnanverðum Vestfjörðum segir flothringina stór og þung fyrirbæri sem sjáist illa í sjó og séu sérstaklega hættuleg smábátum þegar þau eru á reki. „Bátur getur hæglega, ef hann er á mikilli ferð, farið á hvolf við að sigla á svona hring,“ segir Einar.
Hefur legið í fjörunni í mánuð
Um miðjan september rak flothring af sjókví á land í sunnanverðum Patreksfirði. Hann var ekki í notkun, á honum voru engin net og enginn fiskur hafði verið í kvínni. Hann losnaði vegna veðurs og rak upp í fjöru. Hringurinn sjálfur er nokkur tonn að þyngd og erfitt reyndist að ná honum burtu vegna veðurs.
Björgunarsveitin á Patreksfirði reyndi að aðstoða við að draga kvína á flot aftur en það náðist ekki að setja spotta á hana vegna veðurs. Í viðtali við fréttastofu í vikunni sagði Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish, að fyrirtækið hafi beðið eftir veðri til að gera aðra atlögu að því að ná hringnum úr fjörunni. Góðviðrisdagana síðan kvíin strandaði hafi þurft að nota til að sinna fiskinum í kvíunum.
Sæta færis í næstu viku
Eftir umfjöllun fréttastofu hafði Umhverfis- og orkustofnun, sem gefur út starfsleyfi fiskeldisfyrirtækja, samband við Arctic Fish, eigendur kvíarinnar. „Svörin voru að þau ætla að fara í næstu viku og ná í kvína og eru bara að bíða eftir veðurglugga til að komast,“ segir Sigríður Magnúsdóttir, teymisstjóri í teymi eftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun. „Ef að fyrirtækið gerir það ekki þá munum við fylgja því eftir með þvingunarúrræðum.“
Sigríður segir fyrirtæki bera ábyrgð á að fjarlægja rusl eftir sig utan atvinnusvæða. Ef stofnuninni berist tilkynning getur hún krafið eigendur um tímasetta úrbótaáætlun. Ef þær tímasetningar ganga ekki eftir getur stofnunin veitt fyrirtækinu áminningu eða lagt á dagsektir.
Kvíar hafa nokkrum sinnum áður strandað í Patreksfirði
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sjókví rekur á land. Síðasta vetur sagði fréttastofa frá kví sem var strand á sömu slóðum. Sú var í eigu Arnarlax. Svona ramma rak líka á land 2020 og 2024. Þá berast reglulega tilkynningar til Landhelgisgæslunnar um kvíar á reki. Viðbrögð Landhelgisgæslunnar eru þá að krefja eigandann um að sækja kvína og vara sjófarendur við siglingahættunni.
Umhverfis- og orkustofnun bendir fólki sem verður vart við rusl á víðavangi að láta eftirlitsaðila vita af því. „Það er hægt er að senda ábendingar á vef Umhverfis- og orkustofnunar og til heilbrigðiseftirlitanna út um allt land,“ segir Sigríður.