Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur rekið Katie Zacharia, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, úr starfi sínu eftir að hún hafði einungis sinnt því í fimm daga.
Það var bandaríski fjölmiðillinn New York Times sem greindi fyrst frá þessu. Fulltrúar Hvíta hússins hafa staðfest þetta við aðra fjölmiðla.
Zacharia átti ekki óskabyrjun í starfi þegar hún hélt sinn fyrsta blaðamannafund á þriðjudaginn þar sem hún meðal annars ruglaðist á eiginmanni sínum og Trump forseta.
Zacharia, sem tók við af Karoline Leavitt, svaraði aðeins þremur blaðamönnum á fundinum og lauk honum töluvert fyrr en venjan er eða eftir aðeins um stundarfjórðung.
Í umfjöllun New York Times segir að Trump hafi stungið upp á því að hún endurhugsaði starf sitt áður en hann rak hana. Hann hafði í fyrstu stutt við hana eftir frumraunina. Samstarfsmenn hennar í Hvíta húsinu voru þó fljótir að byrja að velta því fyrir sér hvort hún myndi endast í starfi eftir fyrsta blaðamannafundinn.
Trump hafði ítrekað titlað Zacharia sem lögmann en Zacharia hefur verið sökuð um að segja ekki allan sannleikann í tengslum við feril sinn sem slíkur. Hún segist sjálf hafa starfað um tíma sem lögfræðingur í Kína en komið hefur í ljós að hún fékk aldrei lögmannsréttindi í Bandaríkjunum.