Hæstiréttur hefur gert húsfélaginu Miðhrauni 4 að greiða félaginu FF 11 23,5 milljónir króna ásamt dráttarvöxtum vegna ofgreiðslna tryggingafélags FF 11 til húsfélagsins í kjölfar stórbruna í atvinnuhúsnæði að Miðrauni 4 í Garðabæ árið 2018.
Þá gerði Hæstiréttur fasteignafélaginu Heimum atvinnuhúsnæði að greiða FF 11 rúmar 3,7 milljónir króna vegna sameiginlegs kostnaðar við húsnæðið.
Ágreiningur málsaðila sneri að því hvernig skipta ætti kostnaði við endurbyggingu hússins eftir brunann og hvernig vátryggingabætur ættu að skiptast.
Hæstiréttur féllst á það með FF 11 að kostnaður og vátryggingabætur ættu að skiptast eftir hlutfallstölum í eignaskiptayfirlýsingu en ekki eftir brunabótamati.
Hallgrímur Tómas Ragnarsson, eigandi FF 11, segir í samtali við fréttastofu að Heimar hafi vanrækt sínar tryggingar. Þannig hafi brunabótamat á eignarhluta Heima ekki verið uppfært síðan 2006 þrátt fyrir framkvæmdir og numið 708 milljónum á móti 432 milljóna króna brunabótamati á hluta FF 11.
Af samanlögðu brunabótamati nam hlutfall eignarhluta FF 11 þannig tæpum 40% en hlutfall eignarhluta Heima rúmum 60%, en samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu eiga Heimar tæp 76% í húsnæðinu en FF 11 rúm 24%.
Heimar, sem einnig eru í meirihluta í húsfélaginu Miðhrauni 4, vildu að vátryggingar og sameiginlegur kostnaður við enduruppbyggingu eftir brunann miðuðust við hlutfall brunamótamats en ekki hlutföll samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.
Lager IceWear eins og olíustöð með flís upp í rjáfur
Hallgrímur segir annað og mun stærra dómsmál tengt brunanum bíða dómsmeðferðar. Það er skaðabótamál FF 11 á hendur Heimum upp á hundruð milljóna. Skaðabótakrafan byggir á því að Heimar hafi ekki vanrækt brunavarnir í húsnæðinu eftir að því var breytt úr myndveri Latabæjar í lager fyrir IceWear.
Hann segir að húsnæðinu hafi verið breytt í olíustöð. „Þarna er flís upp í rjáfur. Það kom neisti og þá bara sprakk húsið,“ segir Hallgrímur.
Hann segir brunavarnir ekki hafa verið endurhannaðar við breytingu húsnæðisins og það sé gáleysi.
Skaðabótamálið var þingfest fyrir héraðsdómi 2022 en málflutningur er enn ekki kominn á dagskrá.