Hópurinn sem mótmælir fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði finnur fyrir því að eftir að 13 þúsund undirskriftir gegn framkvæmdinni voru afhentar ráðherra koma viðbrögð frá ráðherrum og nú hafa bæði Jóhann Páll Jóhannsson og Hanna Katrín Friðriksson fundað með mótmælendum og í næstu viku eiga þau fund með Kristrúnu Frostadóttur. Og það sem meira er, ráðherrarnir hlusta af athygli á málflutning mótmælenda. Katrín Oddsdóttir, lögmaður og umhverfisverndarsinni, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Katrín Oddsdóttir: Sá að þetta kom ráðherra í opna skjöldu – nema hún sé svona flinkur leikari