Stjórn Norðurorku samþykkti í vikunni að hækka verð á hitaveitu, rafveitu og fráveitu um fimm til sjö prósent. Norðurorka er í eigu sveitarfélaganna við Eyjafjörð, sem samþykktu nýverið að halda aftur af gjaldskrárhækkunum til að stemma stigu við verðbólgu.
Hækkun upp á 5,5% fyrir hitaveitu, 5% fyrir rafmagn, 7% fyrir fráveitu og 2,5% fyrir vatnsveitu – það eru þær gjaldskrárhækkanir sem eru fram undan við Eyjafjörð, að óbreyttu.
Norðurorka er í ríflega 98% eigu Akureyrarbæjar. Hin sveitarfélögin við Eyjafjörð eiga flest vel undir einu prósenti í félaginu. Stjórnarmenn tókust á um hækkanirnar á síðasta fundi en þær voru þó samþykktar af meirihlutanum, sem sagði ekki hjá þeim komist vegna stórra fjárfestinga sem væru fram undan.
Minnihlutinn minnti á að 2,5% þak á gjaldskrárhækkunum hefði verið ætlunin.
„Óheppilegt“ að fyrirtæki í eigu bæjarins fylgi ekki plani
„Við hjá sveitarfélaginu ætlum okkur auðvitað að standa við gefin loforð um að takmarka allar gjaldskrárhækkanir við 2,5%. Þannig okkur finnst þetta bara frekar óheppilegt að fyrirtæki svona í stórri eigu sveitarfélagsins sé ekki að fara eftir þeirri línu sem við ætlum að setja okkur,“ segir Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri.
Verði af breytingunum er það annað árið í röð sem reikningur Akureyringa og nærsveitunga fyrir heitt vatn og aðra þjónustu Norðurorku hækkar umtalsvert. Í fyrra hækkaði gjald fyrir fráveitu til dæmis um rúm 14% og heita vatnið hækkaði um ríflega 5%.
Berglind segir það koma sér vel fyrir alla að ná tökum á verðbólgu. Þó að fram undan séu stórar fjárfestingar telur hún að leita megi annarra leiða en að hækka gjaldskrár.
Norðurorka tekur málið væntanlega aftur fyrir á aðalfundi í næstu viku.
Þannig að það er ekki enn þá gefið að af þessu verði eða hvað?
„Nei, ég myndi ekki segja það. Ég myndi segja að það væri möguleiki að þessu yrði breytt,“ segir Berglind.