Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við blaðamann að lögreglunni hafi í gær verið gert viðvart um mann sem væri að veitast að fólki og sýna ógnandi hegðun í miðborginni.
Þá greinir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, frá því að laganna verðir hafi verið sendir á vettvang til að ræða við manninn. Hann hafi síðan verið handtekinn og fluttur á lögreglustöð eitt á Hverfisgötu þar sem hafi verið rætt við hann frekar.
Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá augnablikið þegar lögreglufólkið bar að garði.