Páll Heiðar Magnússon Aadnegard, fulltrúi VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, á ársþingi ASÍ, er sakaður um fordómafullt tal og hommabrandara á þinginu. Er hann m.a. sagður hafa líkt meintum kærleikum Vilhjálms Birgissonar, formanns Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness, og Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, við ástir aðalpersónanna í kvikmyndinni Brokeback Mountain sem fjallar kúreka sem fella hugi saman.
Fulltrúi á ASÍ þinginu sagður hafa sagt hommabrandara í ræðustól – Líkti Vilhjálmi og Bjarna Ben við persónur úr Brokeback Mountain