Miðað er við að rukkaðar verði 200 til 300 krónur í flýti og umferðargjöld fyrir umferð um ákveðin svæði innan borgarinnar á háannatíma og 50 eða 100 krónur þess utan. Gert er ráð fyrir því að gjöldin leggist á frá og með árinu 2030 og er þeim ætlað að greiða fyrir um helming af framkvæmdum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Þetta kemur fram í svari Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um veggjöld innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Til hefur staðið í þó nokkurn tíma að leggja á slík gjöld og áætlað er að þau skapi 143 milljarða króna í tekjur. Í svari sínu segir ráðherra að gert sé ráð fyrir að eitt gjald sé innheimt á klukkustund og að gjaldfrjálst verði um helgar og á rauðum dögum.
Ætlað að draga úr álagi á háannatíma
Í fyrirspurn sinni spyr Guðlaugur af hvaða framkvæmdum veggjöld verði innheimt. Ekki kemur fram í svari ráðherra á hvaða svæðum slík gjöld verða rukkuð.
Flýti- og umferðagjöldum er ætlað að bæði fjármagna verkefni samgöngusáttmálans en einnig að hafa áhrif á umferð og draga úr álagi á annatíma. Ráðherra tekur fram í svari sínu að slík gjaldtaka hafi þegar gefist vel í stærri borgum Noregs og í Gautaborg og Stokkhólmi í Svíþjóð til að ná markmiðum um betri og fjölbreyttari samgönguúrbætur. Þau séu því ólík veggjöldum sem rukkuð eru fyrir notkun á tilteknu mannvirki, líkt og göngum eða brú, þar sem þau hafi einnig það hlutverk að breyta umferðamynstri ökumanna.
Hámarksgjald fyrir stórnotendur til skoðunar
Ráðherra segir að gjaldtaka verði framkvæmd með sjálfvirkri myndgreiningu þannig að bílferðir um valdar götur sem tengja afmörkuð valin svæði verði skráðar með myndavélum sem taka myndir af bílnúmerum.
Ekki er búið að útfæra hvernig gjaldtöku yrði háttað en í svarinu segir að til greina hafi komið að setja á hámarksgjald á sólarhring fyrir stórnotendur.
Meðal framkvæmda sem eru innan samgöngusáttmálans eru Borgarlína, Fossvogsbrú og Miklabrautarstokkur. Ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, standa sameiginlega að sáttmálanum.