Dálítil lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi gefa fremur hæga norðanátt á landinu í dag. Það verður skýjað að mestu á norðan- og austanverðu landinu og lítilsháttar væta öðru hvoru, en annars víða bjartviðri og stöku skúrir eftir hádegi, jafnvel hellidembur á stöku stað.
Það verður bjart með köflum á vestanverðu landinu, en stöku skúradembur síðdegis og jafnvel eldingar, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Á morgun verður áfram norðlæg átt, víða gola eða kaldi, en strekkingur austast. Dálítil rigning eða súld á Norður- og Austurlandi og fremur svalt í veðri, en bjart með köflum sunnan- og vestantil og allhlýtt. Hiti 6 til 17 stig, mildast á Suður- og Vesturlandi.
Áfram er útlit fyrir norðlægar áttir með vætusömu og svölu veðri fyrir norðan og austan, en lengst af þurru og mildara sunnan- og vestanlands.