Umboðsmaður Alþingis hefur kallað eftir svörum frá Barna- og fjölskyldustofu vegna ábendingar um að ekki hafi farið fram öryggisúttekt á neyðarvistunardeild Stuðla eftir framkvæmdir vegna eldsvoðans haustið 2024. Sautján ára piltur lést í eldsvoðanum.
Í bréfi umboðsmanns til Barna- og fjölskyldustofu er spurt hvort vottorð um öryggisúttekt liggi fyrir vegna viðbyggingar við húsnæði Stuðla þar sem neyðarvistun fer fram, með vísan til byggingarreglugerðar sem segir að óheimilt sé að flytja inn í eða taka í notkun húsnæði nema það uppfylli öryggis- og hollustukröfur.
Ef vottorð liggur ekki fyrir spyr umboðsmaður hvernig það samræmist skyldum Barna- og fjölskyldustofu að vista börn í húsnæði sem mögulega uppfylli ekki kröfur og sé því óheimilt að hafa í notkun.
Samkvæmt upplýsingum frá Barna- og fjölskyldustofu er svar við fyrirspurninni í vinnslu.
Ítrekað hefur verið sett út á aðstæður á Stuðlum á undanförnum árum. Samkvæmt skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í mars voru verulegir annmarkar á brunavörnum á neyðarvistunargangi. Ekki hafði verið gefið út öryggisvottorð fyrir viðbygginguna áður en eldurinn braust út með þeim afleiðingum að 17 ára piltur lést. Eftirlitsaðilar, Ríkiseignir og stjórnendur vanræktu brunavarnir og eftirlit á Stuðlum, segir í skýrslunni. Hægt hefði verið að koma í veg fyrir andlátið hefðu brunavarnir verið í lagi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar enn eldsvoðann. Tíu eru með réttarstöðu sakbornings. Elín Agnes Eide, yfirmaður rannsóknardeildar, segir að beðið sé eftir gögnum svo hægt verði að ljúka rannsókninni.