Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er ánægður með þá niðurstöðu sem náðist í gær við Breiðfylkinguna á íslenskum vinnumarkaði.
Hann segir að viðbótaraðgerðir frá ríkisstjórninni hafi opnað fyrir möguleikann á þeirri niðurstöðu.
Bjarni segir ljóst að atvinnulífið þoli ekki frekari launahækkanir.
„Við höfum of oft gerst sek um að reyna að kreista meira út en innistæða er fyrir og við borgum alltaf fyrir það með verðbólgu og of háu vaxtastigi.“
Bjarni segir þá stöðu leiða til þess að Samtök atvinnulífsins tali fyrir því að núgildandi kjarasamningar haldi.
VR og fagfélögin eiga enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um framhald kjarasamninga.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sagði á Morgunvaktinni á Rás 1 að stýrivaxtaákvörðunin hefði verið í samræmi við spár. Þótt verðbólga hefði aukist þá hefði verið ljóst að hún hefði líklega haldist óbreytt ef ekki hefði komið til hækkunar á virðisaukaskatti eftir tímabundna lækkun í sumar og hækkunar á olíuverði vegna átaka í Miðausturlöndum. Verðbólgan sé ekki drifin áfram af eftirspurn.
„En svo er auðvitað svolítið snúin staða. Það hefur hægst á á vinnumarkaði, það er aukið atvinnuleysi, sérstaklega meðal innfluttra og ungs fólks en það er líka að aukast hjá innlendu fólki. Staðan er þessi: við erum komin með mikla verðbólgu og hátt vaxtastig en hagkerfið er í kólnunarfasa.“
Stýrivextir standa í stað eftir að hafa hækkað síðustu þrjú skipti í röð sem peningastefnunefnd Seðlabankans hefur tilkynnt um stýrivaxtaákvörðun sína.
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að stýrivextirnir verði áfram 8,00 prósent. Nefndin var einróma um þessa ákvörðun sína. Nefndin vísaði til þess að þó verðbólga hafi ekki verið meiri í tvö ár séu sterkar vísbendingar um að hún minnki hratt á næstu árum.
Breiðfylkingin á íslenskum vinnumarkaði, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, náði í gærkvöld samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að kjarasamningar gildi áfram.
Meðal forsenda fyrir því er að ríki og sveitarfélög takmarki gjaldskrárhækkanir við 2,5 prósent og að Samtök atvinnulífsins hvetji aðildarfyrirtæki sín til að halda aftur af verðhækkunum. Einnig ætlar ríkisstjórnin að leggja fram tvö frumvörp um réttindi launafólks, hækka barnabætur og takmarka hækkanir á húsaleigu.
VR og fagfélögin eiga enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Þar er samkomulag ekki í höfn. Verkalýðsfélögin hafa krafist kjarabóta eða úrbóta fyrir það félagsfólk sitt sem hefur hækkað minna í launum en sem nemur verðbólgu. Samtök atvinnulífsins hafa lýst því yfir að þau samþykki ekki meiri útgjöld en þegar hafi verið samið um 2024.
Góðan dag og velkomin á fréttavakt þar sem við fylgjumst með framvindu kjarasamninga og leitum viðbragða við ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum.
Á morgun rennur út frestur til að segja upp kjarasamningum. Breiðfylking Starfsgreinasambandsins, Eflingar, Samiðnar og Byggiðnar gekk í gærkvöld frá samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að samningum yrði ekki sagt upp þó að verðbólga hafi verið það mikil í september að forsendur samningsins brustu.
VR og fagfélögin eiga enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins og ekki er orðið ljóst hvort samkomulag næst áður en fresturinn til að segja upp samningum rennur út á morgun.