Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir að stýrivaxtaákvörðun morgunsins komi ekki á óvart og sé í takt við spár. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti ákvörðun sína í morgun um að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum.
Sonja segir að þótt verðbólga hafi aukist hafi verið ljóst að hún hefði líklega haldist óbreytt ef ekki hefði komið til hækkunar á virðisaukaskatti eftir tímabundna lækkun í sumar og hækkunar á olíuverði vegna átaka í Miðausturlöndum. Verðbólgan sé ekki drifin áfram af eftirspurn.
„En svo er auðvitað svolítið snúin staða. Það hefur hægst á á vinnumarkaði, það er aukið atvinnuleysi, sérstaklega meðal innfluttra og ungs fólks, en er líka að aukast hjá innlendu fólki. Staðan er þessi: við erum komin með mikla verðbólgu og hátt vaxtastig en hagkerfið er í kólnunarfasa,“ sagði Sonja í viðtali í Morgunvaktinni á Rás 1.
„Það eru mjög stórir hópar í samfélaginu sem þarf ekki að slá eftirspurnina hjá heldur þvert á móti þarf að styðja við þá af því að þeir eiga í erfiðleikum með að ná endum saman.“
Erfitt að segja hvort samningar náist í dag
Breiðfylkingin náði samningum við Samtök atvinnulífsins í gærkvöld. Eftir eru VR og fagfélögin. Þau funda í dag en frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út á morgun.
Sonja segir erfitt að spá fyrir um hvort félögin nái að semja við SA í dag. Fyrir liggi að VR þyki samningar Breiðfylkingarinnar ekki í samræmi við sínar áherslur.
„En ég held að það hljóti að skipta gríðarlega miklu máli þetta innlegg stjórnvalda.“
Miður að allir hafi ekki fengið að koma að borðinu
Sonja segir BSRB ekki hafa haft aðkomu að þeim viðræðum sem hafi verið að undanförnu. Kjarasamningsmódelið, sem margir hafi rætt um að þurfi að breyta, byggi að mestu á óskrifuðum reglum.
Til þessa hafi stjórnvöld yfirleitt bæði talað við aðila á opinberum og almennum vinnumarkaði saman. Þá óskrifuðu reglu hafi ríkistjórnin ekki virt að sinni, sem sé miður.
Til að mynda hafi allir verið á sama tíma í Karphúsinu við gerð síðustu kjarasamninga til að reyna að samræma sín markmið til að stemma stigu við vöxtum og verðbólgu.
Það sé að hennar mati ekki hægt að taka ákvarðanir um laun og kjör án þess að hafa opinbera starfsmenn með og ætlast svo til þess að þeir lúti því.
Forsenduákvæði til staðar hjá opinberu starfsfólki
Stærstur hluti félagsfólks BSRB starfar hjá ríki og sveitarfélögum. Sonja segir þó að vissulega séu forsenduákvæði í samningum opinberra starfsmanna. Þá komi BSRB einnig að gerð samninga nokkurra aðildarfélaga sinna við SA.
„Ef samningum er sagt upp á almennum vinnumarkaði þá virkjast heimild fyrir okkur sömuleiðis til að segja upp samningum. Þetta er mjög stuttur frestur varðandi Samtök atvinnulífsins, það eru bara fimm dagar, þannig að frá og með morgundeginum þá eru fimm dagar til að gera það. Svo er aðeins lengri tími gagnvart ríki og sveitarfélögum.“
Það sé í höndum hvers og eins aðildarfélags að taka ákvörðun um að segja upp samningum.
Áform fjármálaráðherra brot á trausti
Spurð hvort hún telji að samningar aðildarfélaga BSRB haldi segir Sonja það fara eftir því hvaða markmið félögin setji sér og hvaða kröfur þau geri.
Fyrst og fremst vilji BSRB leggja áherslu á að stemma stigu við verðbólgu, sem hafi því miður gengið erfiðlega fyrir sig. Þá nefnir Sonja einnig áform fjármálaráðherra um að afnema áminningarskyldu opinberra starfsmanna sem samtökin telji ákveðið brot á trúnaði og trausti.
„Það gæti verið eitthvað efni sem fólk myndi vilja skoða að segja upp samningum upp út af, til að setja inn í kjarasamning.“