Finnsk leyfis- og eftirlitsstofnun tilkynnti í gær dótturfélagi Google í Finnlandi að fyrirtækinu beri að stöðva alla vinnu við tvö fyrirhuguð gagnaver þar til búið er að gera umhverfismat fyrir framkvæmdina.
Finnska ríkisútvarpið greinir frá.
Leyfis- og eftirlitsstofnunin hefur rannsakað starfsemi Google við uppbyggingu gagnavera í Muhos og Kajaani í Finnlandi eftir að upplýsingar komu fram um ólöglegt skógarhögg. Talið er að Google og undirverktakar fyrirtækisins hafi gert mistök og fellt tré þar áður en umhverfismat fór fram.
Tilskipun leyfis- og eftirlitsstofnunar um stöðvun framkvæmdanna gildir þar til búið er að meta umhverfisáhrif þeirra.
Tuike, dótturfyrirtæki Google í Finnlandi sem sér um framkvæmdina, getur þó haldið áfram með skipulagsvinnu, mælingar, jarðvegsrannsóknir og aðra starfsemi sem hefur ekki áhrif á umhverfið.
Upplýsingafulltrúi Google í Finnlandi og Noregi, Sondre Ronander, segir að Google starfi í góðri trú samkvæmt skógræktarlögum. Mat á umhverfisáhrifum heyrir þó ekki undir skógræktarlögin heldur um lög um mat á umhverfisáhrifum.
Ráðherra umhverfis- og loftslagsmála, Sari Multala, sagði í viðtali við finnska dagblaðið Iltalehti á þriðjudag að það heyri til undantekninga að yfirvöld neyðist til að stíga inn í og stöðva framkvæmdir. Hún sagði að öll fyrirtæki sem starfa í Finnlandi verði að fara eftir lögum og gera mat á umhverfisáhrifum áður en farið er í verulegar og varanlegar breytingar á umhverfinu.