Stórum hluta þeirrar óvissu sem ríkti í kjaramálum var aflétt í gærkvöld þegar Breiðfylkingin skrifaði undir samkomulag við Samtök atvinnulífsins. Þar með varð ljóst að þau segja ekki upp kjarasamningum heldur hefur verið samið um að þeir gildi áfram þrátt fyrir forsendubrest.
Enn er óráðið hver niðurstaðan verður í kjaradeilu VR og fagfélaganna við SA. Fulltrúar þeirra ræddu saman í gær og stefnt er á frekari fundahöld í dag. Þá gæti ráðist hvort félögin segi samningunum upp, líkt og þau fengu heimild til á mánudag, eða hvort þeir gildi áfram.
Frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út á morgun. Í dag kynnir Seðlabankinn stýrivaxtaákvörðun sína.
Starfsgreinasambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn mynda Breiðfylkinguna sem samdi í gærkvöld.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, fagnaði samkomulaginu og sagði markmiðið vera að tryggja áframhaldandi gildi samninga og skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta.
Vilhjálmur sagði afar ánægjulegt að sjá aðkomu forsætisráðherra og stjórnvalda að kjaradeilunni og vilja þeirra til að finna lausnir sem styrktu forsendur samninganna. Hann og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ræddu tvisvar við forsætisráðherra í gær og áttu fundi með henni um síðustu helgi.
Samkomulagið felur þetta í sér:
- Ríkið heldur aftur af hækkunum krónutölugjalda sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs innan 2,5% árið 2027, að kílómetragjaldi undanskildu. Sama hámark gildir um gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitöluna.
- Fyrirtæki í ríkiseigu verða hvött til að halda gjaldskrárhækkunum opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitöluna innan 2,5%.
- Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélögin til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5%. Aðkoma þeirra er gríðarlega mikilvæg og ég fagna þeim jákvæðu viðbrögðum sem við höfum fengið víða um land.
- Samtök atvinnulífsins hvetja aðildarfyrirtæki sín til að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum.
- Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um einstaklingsbundinn rétt til févítis vegna vangreiddra lágmarkskjara. Þetta er afar mikilvægur áfangi í baráttunni gegn launaþjófnaði.
- Lagt verður fram frumvarp á sama tíma um að lágmarkskjör launafólks falli ekki niður vegna tómlætis. Þetta hefur lengi verið mér mikið hjartans mál. Fólk verður að geta treyst því að réttur þess til umsaminna launa og starfskjara sé varinn.
- Fjárhæðir og skerðingamörk barnabóta verða hækkuð með lagabreytingu á þessu haustþingi í samræmi við fyrirheitin frá 2024. Frá árinu 2028 er stefnt að því að barnabætur þróist með sama hætti og þrepamörk tekjuskatts.
- Lagt verður fram frumvarp á þessu haustþingi um að banna mánaðarlegar vísitöluhækkanir húsaleigu og tryggja að minnst tólf mánuðir líði milli hækkana.
- Ríkið mun tímabundið geta fjármagnað stofnframlög sveitarfélaga til almennra íbúða. Það styður við uppbyggingu hagkvæms leiguhúsnæðis fyrir tekjulægra fólk.
- Fari ársverðbólga yfir 4% í lok október 2027 verða greiddar sérstakar einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028, samtals tveir milljarðar króna. Fari verðbólgan yfir 5% verður fjárhæðin þrír milljarðar króna.
- Unnið verður að húsnæðisstuðningi við eigendur húsnæðis, nýju húsnæðislánakerfi, keðjuábyrgð í stærri verklegum framkvæmdum og endurskoðun laga um Ábyrgðarsjóð launa.
- Mótuð verður viðbragðsáætlun gegn vaxandi atvinnuleysi og ráðist í einföldun regluverks til að draga úr kostnaðarþrýstingi í atvinnurekstri.