Fyrrum yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar BND var handtekinn í Þýskalandi í gær vegna gruns um njósnir og landráð. August Hanning var yfirmaður BND á árunum 1998 til 2005 og hefur síðan unnið sem ráðgjafi.
Samkvæmt ákæruvaldinu í Þýskalandi er Hanning grunaður um að hafa nýtt háleynilegar upplýsingar til að gera uppkast að greiningu fyrir leyniþjónustu erlends ríkis og fyrir að hafa haldið tengslum við aðra erlenda leyniþjónustu. Ekki hefur verið gefið upp hvaða erlend ríki eru sögð hafa nýtt sér upplýsingarnar.
Fyrrum starfsmannastjóri þýsku leyniþjónustunnar, Manfred D., var einnig handtekinn en hann er grunaður um að hafa aðstoðað við tilraun til landráða og njósnir fyrir landráð. Hann vann sem starfsmannastjóri þýsku leyniþjónustunnar á árunum 2012 fram í mars á þessu ári.
Talið er að hann hafi komið um 2.000 skjölum áfram til Hanning á árunum 2010 til 2022, þar á meðal háleynilegum upplýsingum sem voru eingöngu fyrir þýsku leyniþjónustuna. Hanning er sagður hafa greitt Manfred D. fyrir upplýsingarnar.
Gögn leyniþjónustunnar fundust við húsleit í öðru máli
Lögregla hóf rannsókn á Hanning þegar húsleit var gerð á heimili hans í tengslum við annað sakamál. Hann lá undir grun fyrir að tengjast máli Christinu Block, erfingja Bock-steikhúsakeðjunnar, sem rændi tveimur börnum sínum frá föður sínum í forræðisdeilu. Við húsleitina fundust leynileg gögn, þar á meðal viðkvæm gögn BND-leyniþjónustunnar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem starfsmaður þýsku leyniþjónustunnar er til rannsóknar fyrir landráð. Árið 2023 var háttsettur leyniþjónustumaður, Carsten L., ákærður fyrir að njósna fyrir Rússa og deila leynilegum upplýsingum um stríðið í Úkraínu.