Birtu 29 dóma úr saka- og einkamálum eftir kvörtun frá fréttastofu

Birtu 29 dóma úr saka- og einkamálum eftir kvörtun frá fréttastofu

Birtu 29 dóma úr saka- og einkamálum eftir kvörtun frá fréttastofu

Þann 18. ágúst hafði Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 17 dóma úr einka- eða sakamálum á vef dómstólsins frá árinu 2026. Uppkveðnir dómar á árinu voru aftur á móti 50 - og því 33 óbirtir. Þetta fer gegn reglum um birtingu dóma og þegar fréttastofa leitaði svara var skýringin sögð álag og mannekla hjá dómstólnum.

Þetta þýðir að í þrjátíu og þremur málum höfðu aðeins þeir sem voru viðstaddir uppsögu í dómsal á Akureyri fengið upplýsingar um dóminn og almenningur því ekki upplýstur um málalyktir. Dómarnir sem ekki voru birtir greindu frá sekt og þá refsingu - eða sýknu - fólks sem hafði verið ákært fyrir líkamsárásir, kynferðisbrot og önnur alvarleg brot, eins og til dæmis sprengingu í Múlagöngum.

Starfsfólk hafði ekki komist yfir að birta dóma vegna álags

Málið vakti mikla athygli, sprengjan var sögð sú stærsta sinnar tegundar og olli miklu tjóni í göngunum. Fimm árum síðar höfðu engar fregnir borist af málalyktum, fjölmiðlar höfðu ekki upplýsingar um dóm sem hafði verið kveðinn upp og hann var ekki birtur opinberlega.

Ekki fyrr en fréttastofa RÚV gerði athugasemd við hve fáir dómar höfðu birst frá Norðurlandi eystra á árinu - og var sagt að skýringin væri mannekla og annir, þau hefðu ekki haft tíma til að birta dómana. Þessu svari kom fréttastofa áleiðis til Dómstólasýslunnar og 26. ágúst höfðu bæst við tuttugu og níu dómar á vef Héraðsdóms Norðurlands eystra, sumir orðnir nokkurra mánaða gamlir.

Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst var fjallað um gagnsæi í dómskerfinu. Fréttastofa RÚV og aðrir fjölmiðlar hafa ítrekað orðið að ganga á eftir birtingum dóma og oft gengið erfiðlega að fá upplýsingar um réttarhöld. Héraðsdómur Norðurlands eystra birti tuttugu og níu dóma í sumar, eftir að fréttastofa gerði athugasemd við vinnulag dómstólsins. Sumir dómanna höfðu legið óbirtir mánuðum saman og farið þannig gegn reglum Dómstólasýslunnar.

Ekki í fyrsta sinn sem ganga þarf á eftir dómum á landsbyggðinni

Grunnreglan um birtingu dóma er að í öllum sakamálum eigi að birta dóma innan fimm virkra daga, í einhverjum tilvikum megi birting bíða í 14 virka daga.

Kristín Haraldsdóttir er framkvæmdastjóri Dómstólasýslunnar, sem er sjálfstæð stofnun í forsvari fyrir alla dómstóla landsins. Hún segist telja útgáfu dóma almennt vel innan tilsettra marka.

„Hvað veldur þarna, við höfðum nú samband við dómstólinn og skýringin var sú að það væri búið að vera mikið álag. Og það er alveg rétt það er búið að vera mikið álag á Akureyri. Það í sjálfu sér réttlætir þetta ekki og við erum ekki ánægð með hlutfall á borð við þetta, alls ekki og það á ekki að vera þannig.“

Þó Kristín segi þetta heyra til undantekninga settumst við niður í svipað viðtal árið 2023 til þess að ræða dóma sem voru birtir hjá Héraðsdómi Norðurlands vestra á Sauðárkróki, eða öllu heldur ekki birtir.

Árið 2022 vantaði nefnilega 80% uppkveðinna dóma á vef dómstólsins, aðeins fimm voru birtir af þrjátíu og sjö saka- og einkamálum. Það ár vantaði eins mikið upp á hjá Norðurlandi eystra, sem birti rétt um helming uppkveðinna dóma og á Reykjanesi, Vesturlandi og Suðurlandi vantaði meira en helming uppkveðinna dóma. Hvort þar á meðal voru mál sem hefðu átt erindi við almenning eða vörðuðu til dæmis fólk í valdastöðum, er erfitt að segja.

Gagnsæi togast stöðugt á við persónuverndarsjónarmið

Brynjólfur Þór Guðmundsson, kollegi minn á fréttastofu RÚV, hefur fjallað um dómsmál síðan upp úr aldamótum, fyrst í dagblöðum, en síðar í útvarpi, sjónvarpi og á vef.

Hann segir margt hafa breyst í umfjöllun fjölmiðla um dómsmál, blaðamönnum hafi verið gert miserfitt í gegnum árin að uppfylla þá frumskyldu sína að segja frá málum sem hafa gildi og afleiðingar fyrir almannarýmið.

Á árum áður hafi gagnsæið að sumu leyti verið betra en er í dag. Þá fengu til dæmis fréttamenn senda með faxi dagskrá dómstólanna með nöfnum sakborninga, sem eru í dag afmáð í skjölum sem birtast á netinu vegna persónuverndarsjónarmiða. Það geri fjölmiðlafólki erfiðara að fylgjast með málum og komast að því ef til dæmis landsþekkt fólk eða fólk í valdastöðum er fyrir dómi.

Þetta þekkir hann vel frá því hann ritstýrði dagblaði sem komst á snoðir um að sveitarstjóri hefði verið dæmdur fyrir að stela háum fjárhæðum af fyrirtæki sem hann vann hjá. Eftir umfjöllun um málið og birtingu nafns hans, fékk sveitarstjórn fyrst fregnir af málinu. Í ljós kom í framhaldi að hann hafði stolið háum fjárhæðum af sveitarfélaginu líka. Þetta segir Brynjólfur dæmi um aðhaldið sem eigi að veita með fréttaflutningi af dómsmálum.

En nafnbirting í skjölum sem fara aðeins í hendur fréttamanna er auðvitað annað en opinber birting og það er ein flækjan við internetið, þar eru sífellt auknar kröfur um meðferð persónuupplýsinga.

Vilja nota gervigreind til að hreinsa dóma og auðvelda birtingu

Kristín segir dómstólasýsluna þarna þurfa að meta annars vegar mikilvægi persónuverndar og hins vegar almennu regluna um að réttarhöld eigi að fara fram fyrir opnum tjöldum. Þau skoða nú hvort gervigreind geti auðveldað þeim að hreinsa dóma, svo ekki verði bið eftir birtingum eins og dæmin hér á undan sanna.

Eins og fyrr segir er almenna reglan að alla dóma eigi að birta opinberlega. Á því eru þó undantekningar, ef málin teljast sérstaklega viðkvæm - á borð við sifjamál eða lögræðismál.

Það er þó ekki alltaf skýrt hvað teljist sérstaklega viðkvæmt, dómarar til dæmis í minni byggðarlögum geta tekið ákvarðanir um að birta ekki dóma eða önnur gögn, vegna smæðar samfélaganna.

Er líklegra þú njótir nafnleyndar eftir dóm í minna byggðalagi?

En eftir stendur þá kannski sú spurning, hvort sé þá hentugra að vera ákærður og sakfelldur á landsbyggðinni en til dæmis í Reykjavík, hvort minni líkur séu á að dómar verði birtir eða nöfn sakborninga opinberuð í minna samfélagi.

Birting dóma og nafna sakborninga á að fela í sér fælingarmátt, þig langi síður að brjóta af þér ef þú veist að réttarhöldin og dómurinn verði fyrir allra augum.

Kristín ber fullt traust til dómara í þessu tilliti.

„Við treystum mati dómara í þessu eins og öðru við meðferð dómsmála. Þetta getur til dæmis verið í smærri byggðum þar sem að hreinsun ein og sér myndi ekki vernda þá hagsmuni sem eru undir gagnvart viðkvæmum upplýsingum.“

En það er gömul saga og ný að ákveðin togstreita ríki milli fjölmiðlafólks og dómskerfisins, þar sem takast á skyldan til að veita aðhald og greina almenningi frá mikilvægum málum og svo tregða dómstólanna til að afhenda upplýsingar sem gætu farið gegn persónuverndarsjónarmiðum.

Auk fréttastofu RÚV hafa fréttamenn annarra fjölmiðla hérlendis ítrekað greint frá því að ganga þurfi á eftir upplýsingum, jafnvel í málum sem varða landsþekkta, háttsetta einstaklinga.

Fyrir nokkrum árum hafði fréttastofa fjallað ítarlega um alvarlegt sakamál á Norðurlandi. Maður var ákærður fyrir manndráp og eins og venjan er í slíkum málum fjölluðu fjölmiðlar ítarlega um réttarhöldin. Þegar kom að dómsuppsögu misstum við af þinghaldinu og skildum ekki hvernig það hafði gerst, eftir að vakta dagskrá dómstólsins stöðugt þegar dómsins var að vænta. Svara var óskað frá dómstólnum, sem sagði dómsuppsöguna hafa verið setta inn í dagskrá að loknu þinghaldi - til þess að ekki yrðu of margir viðstaddir. Fréttastofa RÚV var því ekki á staðnum, ekki fréttamaður og engar myndir teknar.

Hægt að sjá hvers eðlis málin en leynd yfir nöfnum sakborninga

Síðan hefur dómstólasýslan sett reglur um samræmda birtingu dagskrár dómstólanna, ætlaða til þess að fækka tilvikum sem þessum. Það sem þær reglur höfðu í för með sér er að mál eru loks flokkuð eftir efni og því geta fréttamenn fylgst vel með því sem til dæmis er merkt sem: Stórfelld líkamsárás, en eytt síður orku í að fá upplýsingar um sakamál sem svo reynast vera minniháttar umferðarlagabrot.

Á sama tíma breyttist aðgengi fréttamanna að dagskránni. Hana hafði áður verið hægt að skoða aftur í tímann, en hún eyðist nú jafnóðum. Þetta segir Kristín gert til að tryggja persónuvernd, líka í tilvikum þar sem engin nöfn eru tilgreind.

En víkjum aftur að Héraðsdómi Norðurlands eystra. Ég spurði Brynjólf Þór fréttamann hvað honum þætti um skýringar dómstólasýslunnar á að þrjátíu og þremur dómum hefði verið haldið frá almenningi mánuðum saman.

„Nú þekki ég að sjálfsögðu ekki til vinnuálags hjá dómstólum, ég geri ráð fyrir að fólk vinni vinnuna sína og geri það samviskusamlega. Þetta er ekki boðleg afsökun, það að segja við höfum ekki mannskap eða annað slíkt, við höfum ekki efni á þessu, það er bara ekki boðlegt“, segir Brynjólfur. „Það að það sé mannekla þýðir ekki að menn geti sinnt bara einum hluta af þessu, vegna þess að það að fjalla um málin og kveða upp dóma er einn hluti af störfum dómstóla. Það að niðurstaðan sé aðgengileg og opinber er gríðarlega mikilvægur hluti af þessu.“
#birtu #dóma #eftir #einkamálum #saka


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-07-birtu-29-doma-ur-saka-og-einkamalum-eftir-kvortun-fra-frettastofu-489022

📰 Aðrar fréttir

Stýrivextir áfram 8%
📅 07.10.2026 👁️ 0
Stýrivextir áfram 8%
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%. Nefndin var einróma í ákvörðun sinni en verðbólga mældist 5,9...
Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum - Vísir
Drengirnir höfðu leitað til hans vegna starfa hans sem biskup og nýtti hann sér stöðu sína til að brjóta á þeim. Hann var ákærður fyrir tvær nauðganir...
Telur Thomas Møller hafa fengið tæki­færi til að eyða sönnunar­gögnum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Telur Thomas Møller hafa fengið tæki­færi til að eyða sönnunar­gögnum - Vísir
Leifur stýrði rannsókn málsins og tók allar skýrslur af Thomas eftir að hann var handtekinn um borð í grænlenska togaranum Polar Nanoq í janúar árið 2...
Klámstjarnan sem endaði á sjúkrahúsi eftir kynlífsmaraþon gengin í hnapphelduna
📅 07.10.2026 👁️ 1
Klámstjarnan sem endaði á sjúkrahúsi eftir kynlífsmaraþon gengin í hnapphelduna
Ástralska klámstjarnan Annie Knight gekk í hnapphelduna um helgina.Hún giftist unnusta sínum, Henry Brayshaw, en parið trúlofaðist í mars 2025.Knight ...
Vilhjálmur fagnar stórum tíðindum – Þetta gæti breyst fyrir launafólk
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vilhjálmur fagnar stórum tíðindum – Þetta gæti breyst fyrir launafólk
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, fagnar samkomulagi Breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins um viðbrögð vegna forsen...
Raungengi krónu aldrei hærra og ekki sjálfbært til lengdar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raungengi krónu aldrei hærra og ekki sjálfbært til lengdar
Gengi íslensku krónunnar, sem var sterkt fyrir, hefur styrkst enn meira í sumar og haust. Frá áramótum nemur styrkingin um 4,7% og meira en helminguri...
The Rise of Pedri: The Canary Island Magician
📅 07.10.2026 👁️ 1
The Rise of Pedri: The Canary Island Magician
Pedri was born on 25th November 2002 in Tegueste, Tenerife, and from an early age, football was an important part of his life. Pedri, real name Pedro ...
Vill fimm­tán ára reynslutíma­bil fyrir ný aðildar­ríki - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Vill fimm­tán ára reynslutíma­bil fyrir ný aðildar­ríki - Vísir
Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, kynnti tillögurnar í gær. Í viðtali við fjölmiðla sagði hún að sambandið yrði að hafa aðrar og einfaldar...
Fyrstu umræðu um bókun 35 lokið
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fyrstu umræðu um bókun 35 lokið
Fyrstu umræðu um bókun 35 lauk á Alþingi á tólfta tímanum í gærkvöld. Frumvarpið gengur því til annarrar umræðu en fer fyrst til umfjöllunar í utanrík...
Eva Marie Saint er látin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Eva Marie Saint er látin - Vísir
Saint fæddist árið 1924 og steig fyrst á svið á meðan hún var í háskólanámi. Eftir námið flutti hún til New York og hóf að leika í útvarpsleikritum og...
Þessu lofaði ríkisstjórnin til að tryggja að kjarasamningar héldu
📅 07.10.2026 👁️ 0
Þessu lofaði ríkisstjórnin til að tryggja að kjarasamningar héldu
Þessu lofaði ríkisstjórnin til að tryggja að kjarasamningar héldu Skuld­sett heim­ili gætu feng­ið sam­tals þrjá millj­arða króna í vaxta­bæt­ur ef ár...
Seðlabankinn kynnir stýrivexti sína í dag
📅 07.10.2026 👁️ 1
Seðlabankinn kynnir stýrivexti sína í dag
Stýrivaxtaákvörðunardagur er runninn upp og klukkan hálf níu kynnir Seðlabankinn hverjir stýrivextirnir verða næsta einn og hálfa mánuðinn.Stýrivextir...
Google þarf að stöðva framkvæmdir við gagnaver þar til umhverfismat liggur fyrir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Google þarf að stöðva framkvæmdir við gagnaver þar til umhverfismat liggur fyrir
Finnsk leyfis- og eftirlitsstofnun tilkynnti í gær dótturfélagi Google í Finnlandi að fyrirtækinu beri að stöðva alla vinnu við tvö fyrirhuguð gagnave...
Breiðfylkingin búin að semja en VR og fagfélögin funda í dag
📅 07.10.2026 👁️ 2
Breiðfylkingin búin að semja en VR og fagfélögin funda í dag
Stórum hluta þeirrar óvissu sem ríkti í kjaramálum var aflétt í gærkvöld þegar Breiðfylkingin skrifaði undir samkomulag við Samtök atvinnulífsins. Þar...
Ung og upp­rennandi: „Pabbi segir mér al­veg að hætta þessu“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ung og upp­rennandi: „Pabbi segir mér al­veg að hætta þessu“ - Vísir
Þetta segir hin tvítuga Unnur Borg Ólafsdóttir í fyrsta þættinum af Ung og upprennandi þar sem við kynnumst unga fólkinu okkar sem er að ryðja sér til...
Sigmundur segir viðbrögð Þorgerðar fordæmalaus – „Reyna að eyðileggja málstað Íslands“
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sigmundur segir viðbrögð Þorgerðar fordæmalaus – „Reyna að eyðileggja málstað Íslands“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sakar Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um að tala máli þeirra sem stefna Íslandi ...
Bleyta víða um land
📅 07.10.2026 👁️ 2
Bleyta víða um land
Landsmenn mega víðast hvar búast við dálitlum skúrum eða jafnvel slydduéljum í dag. Austanlands verður þó bjartara yfir, allavega framan af.Ef fólk er...
Frost í nótt en hlýnar yfir daginn - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Frost í nótt en hlýnar yfir daginn - Vísir
Þetta kemur fram í spá Veðurstofu Íslands. Yfirleitt verður hægur vindur og víða lítilsháttar skúrir eða slydduél. Lengst af verður þurrt og bjart aus...
Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið - Vísir
Þetta er niðurstaða kærunefndar húsamála. Í úrskurðinum kemur fram að leigjandinn hafi verið á leið í skólann að morgni 8. janúar síðastliðins þegar h...
Business owner arrested for employing illegal staff with no contracts
📅 07.10.2026 👁️ 2
Business owner arrested for employing illegal staff with no contracts
The person responsible for a gardening and swimming-pool maintenance company in Fuerteventura has been arrested by the National Police over the allege...
Man admits role in plot to fraudulently take over 141 properties in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 2
Man admits role in plot to fraudulently take over 141 properties in the Canary Islands
The principal defendant in the Caso Catastro has admitted charges relating to an alleged scheme to fraudulently take control of 141 fincas and propert...
Einn hand­tekinn eftir líkams­á­rás í Kópa­vogi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Einn hand­tekinn eftir líkams­á­rás í Kópa­vogi - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en eftir nóttina voru sex vistaðir í fangageymslu lögreglunnar.  Í miðborg Reykjavíkur vor...
Heavy rain and thunderstorms still forecast in the Canary Islands today
📅 07.10.2026 👁️ 4
Heavy rain and thunderstorms still forecast in the Canary Islands today
Tenerife and Gran Canaria are forecast to have locally heavy showers and isolated thunderstorms today (Wednesday) as unstable weather continues across...
Thomas Möller skrifar: ESB – næstu skref
📅 07.10.2026 👁️ 4
Thomas Möller skrifar: ESB – næstu skref
Mynd Evrópusinnar á Íslandi eru að sleikja sárin eftir að hafa orðið
Varað við Samúel á miðum í Torrevieja á Spáni – Sólarsýn segir merki sitt notað án leyfis
📅 07.10.2026 👁️ 4
Varað við Samúel á miðum í Torrevieja á Spáni – Sólarsýn segir merki sitt notað án leyfis
Viðvörunarmiðar með mynd af Samúel Jón Samúelssyni hafa verið hengdir upp víða á Torrevieja svæðinu á Spáni, að sögn Sólarsýnar. Á miðunum er fólk hva...
Residents of kibbutz destroyed in 7 October Hamas attacks grapple with how to rebuild
📅 07.10.2026 👁️ 4
Residents of kibbutz destroyed in 7 October Hamas attacks grapple with how to rebuild
Three years on from the attack on Nir Oz, in which 47 people were killed and 76 taken hostage, some survivors have returned to live there.
Military training sites to be investigated following rape and abuse claims at Army college
📅 07.10.2026 👁️ 4
Military training sites to be investigated following rape and abuse claims at Army college
In August, four young women told the BBC they were sexually assaulted and harassed at the school in Harrogate.
The Republican candidates walking a Trump tightrope
📅 07.10.2026 👁️ 4
The Republican candidates walking a Trump tightrope
Some running in November's elections are deciding whether to distance themselves from an unpopular president who still dominates his party.
Fyrrum yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar grunaður um njósnir og landráð
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fyrrum yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar grunaður um njósnir og landráð
Fyrrum yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar BND var handtekinn í Þýskalandi í gær vegna gruns um njósnir og landráð. August Hanning var yfirmaður BND á á...
Battle of ideas looming in British politics, Badenoch to say
📅 07.10.2026 👁️ 4
Battle of ideas looming in British politics, Badenoch to say
The Tory leader has been seeking to reframe the way the public views her party, which has yet to recover in the polls since the last election.
Vilja að Rússland deili gögnum um dauða af völdum plágu
📅 07.10.2026 👁️ 4
Vilja að Rússland deili gögnum um dauða af völdum plágu
Rússnesk stjórnvöld hafa gert lítið úr fréttum af því að starfsmaður á rannsóknarstofu í Irkutsk-héraði í Síberíu hafi látist af völdum plágu, nánar t...
Vilja að Rússland deili gögnum um dauða af völdum lungnapestar
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vilja að Rússland deili gögnum um dauða af völdum lungnapestar
Rússnesk stjórnvöld hafa gert lítið úr fréttum af því að starfsmaður á rannsóknarstofu í Irkutsk-héraði í Síberíu hafi látist af völdum plágu, nánar t...
Litáíska þingið styður afnám banns við kjarnorkuvopnum
📅 07.10.2026 👁️ 4
Litáíska þingið styður afnám banns við kjarnorkuvopnum
Meirihlutinn á litáíska þinginu styður breytingartillögu á stjórnarskrá um að fjarlægja bann við kjarnorkuvopnum úr stjórnarskrá landsins. Með þessari...
Jaguar launches new electric car after 'woke' ridicule
📅 07.10.2026 👁️ 4
Jaguar launches new electric car after 'woke' ridicule
Two years after JLR relaunched Jaguar into a blizzard of controversy, it has unveiled its new electric car.
Jaguar unveils its polarising Type 01 electric car
📅 07.10.2026 👁️ 4
Jaguar unveils its polarising Type 01 electric car
Two years after JLR relaunched Jaguar into a blizzard of controversy, it has launched its new EV.
Jaguar unveils new electric car after 'woke' ridicule
📅 07.10.2026 👁️ 2
Jaguar unveils new electric car after 'woke' ridicule
Two years after JLR relaunched Jaguar into a blizzard of controversy, it has launched its new EV.
What we know about Christa Pike’s recovery after failed execution
📅 06.10.2026 👁️ 4
What we know about Christa Pike’s recovery after failed execution
The BBC's Sarah Smith details the injuries sustained by the US death row inmate after two failed lethal injections, and what comes next.
Breiðfylkingin framlengir samning við SA
📅 06.10.2026 👁️ 4
Breiðfylkingin framlengir samning við SA
Breiðfylkingin á íslenskum vinnumarkaði, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, hefur náð samkomulagi við Samtö...
Breiðfylkingin gerir samning við SA um framhald kjarasamninganna
📅 06.10.2026 👁️ 2
Breiðfylkingin gerir samning við SA um framhald kjarasamninganna
Breiðfylkingin á íslenskum vinnumarkaði, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, hefur náð samkomulagi við Samtö...
Fram­lengja samninga út næsta ár - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Fram­lengja samninga út næsta ár - Vísir
„Ég held að allir átti sig á mikilvægi þess að það er ávinningur allra að kjarasamningar haldi lífi í stað átaka, sem kæmu upp á sama tíma og atvinnul...
UK risks being 'uninvestable' if new oil and gas fields not approved, warns Equinor
📅 06.10.2026 👁️ 4
UK risks being 'uninvestable' if new oil and gas fields not approved, warns Equinor
Equinor warns it may shun further investments in the UK if new oil and gas fields at Rosebank and Jackdaw are not approved.
Endur­greiðir ekki ríkinu fyrir aug­lýsingarnar um­deildu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Endur­greiðir ekki ríkinu fyrir aug­lýsingarnar um­deildu - Vísir
Ólöglegt ætti að vera að verja skattfé í framleiðslu og birtingu auglýsinga sem þessara. Nú segja starfsmenn forsetans við blaðamenn vestanhafs að han...
Margrét kveðst undirbúa kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu
📅 06.10.2026 👁️ 4
Margrét kveðst undirbúa kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu
Margrét McArthur Friðriksdóttir undirbýr nú kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna synjunar Landsréttar um að áfrýja meiðyrðamáli gegn henni. Marg...
Komin til með­vitundar eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Komin til með­vitundar eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
Pike er fimmtug en hún var árið 1996 dæmd til dauða fyrir aðkomu hennar að morði á skólafélaga hennar. Pike var þá um átján ára þegar hún ásamt kærast...
Íslendingar lýsa busavígslunum sínum – „Í mínum framhaldsskóla missti einn businn putta“
📅 06.10.2026 👁️ 4
Íslendingar lýsa busavígslunum sínum – „Í mínum framhaldsskóla missti einn businn putta“
Íslendingar sem hafa farið í framhaldsskólanám, sérstaklega þeir af eldri kynslóðinni, þekkja vel þann grimmdarlega sið sem busavígsla er. Það er vígs...
„Það væri ekki hægt að skrifa þetta hand­rit“ - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
„Það væri ekki hægt að skrifa þetta hand­rit“ - Vísir
Fjallað hefur verið um aðdraganda heimsóknarinnar hér á Vísi; hvernig SOS greip til þeirra örþrifaráða að leita til almennings að hjálp við að finna H...
Margrét hyggst kæra til Mann­réttinda­dóm­stóls Evrópu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Margrét hyggst kæra til Mann­réttinda­dóm­stóls Evrópu - Vísir
Margrét var sakfelld fyrir ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara.  Landsréttur synjaði henni um leyfi til að áfrýja dóminum 2. október...
Christa Pike er vöknuð
📅 06.10.2026 👁️ 4
Christa Pike er vöknuð
Christa Pike, dauðadæmdur fangi í Tennessee fylki sem mistókst að taka af lífi í síðustu viku, er komin til meðvitundar. Að sögn lögmanna hennar getur...
Powys farmer says abuse from dad was 'torture' and wants more support
📅 06.10.2026 👁️ 2
Powys farmer says abuse from dad was 'torture' and wants more support
Tracy Lewis says she loved growing up on a farm but that the abuse from her father was terrifying.
Með fulla meðvitund eftir tvær misheppnaðar aftökutilraunir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Með fulla meðvitund eftir tvær misheppnaðar aftökutilraunir
Christa Pike er með fulla meðvitund eftir tvær misheppnaðar aftökur. Pike var í seinustu viku sprautuð tvisvar með banvænum skammti af pentóbarbítóli....