Saint fæddist árið 1924 og steig fyrst á svið á meðan hún var í háskólanámi. Eftir námið flutti hún til New York og hóf að leika í útvarpsleikritum og sjónvarpi.
Saint vann Óskarsverðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir fyrstu kvikmyndina sem hún lék í, On the Waterfront. Hlutverkið sem hún varð hvað þekktust fyrir var hins vegar hlutverk Eve Kendall í kvikmyndinni North by Northwest í leikstjórn Alfred Hitchcock.
Eftir að sú mynd kom út ákvað Saint að taka að sér færri hlutverk til að verja meiri tíma með eiginmanni sínum og börnum. Hún giftist Jeffrey Hayden leikstjóra árið 1951 og eignuðust þau saman tvö börn. Sonur þeirra fæddist tveimur dögum áður en hún tók á móti Óskarsverðlaununum. Þau hjónin voru gift í 65 þar til Hayden lést árið 2106.
Hún lék samt sem áður í fjölda kvikmynda og vann Emmy-verðlaun fyrir leik sinn í People Like Us. Saint hélt áfram að leika þar til hún var komin á tíræðisaldurinn, meðal annars í kvikmyndinni Superman Returns sem kom út árið 2006.
Saint lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu í Los Angeles.