Fyrstu umræðu um bókun 35 lauk á Alþingi á tólfta tímanum í gærkvöld. Frumvarpið gengur því til annarrar umræðu en fer fyrst til umfjöllunar í utanríkismálanefnd.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu um innleiðingu bókunar 35 klukkan tvö í gær. Hún sagði að innleiðing bókunar 35 snerist í grunninn um hvort fólk ætti raunverulega að njóta þeirra réttinda sem Alþingi hefði samþykkt þegar á reyndi. Hún vísaði til máls íslenskrar konu sem naut ekki þeirra réttinda í fæðingarorlofi sem henni bar því bókun 35 hefði ekki verið innleidd. Hún sagði málið á endanum snúast um rétt fólks.
Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, sagði undir lok umræðunnar að hann teldi augljósa hættu á að frumvarpið bryti gegn stjórnarskránni. Hann sagði að því þyrfti fyrst að breyta stjórnarskránni áður en bókun 35 væri innleidd í lög.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var síðasti ræðumaður. Hann hvatti utanríkismálanefnd til að skoða hvaða afleiðingar það hefði að samþykkja frumvarpið.