Stýrivaxtaákvörðunardagur er runninn upp og klukkan hálf níu kynnir Seðlabankinn hverjir stýrivextirnir verða næsta einn og hálfa mánuðinn.
Stýrivextir hafa hækkað þrisvar í röð og fóru síðast í 8,00 prósent. Þeir hafa hækkað um 0,75 prósentustig frá því í febrúar þegar vextirnir voru 7,25 prósent. Þeir fóru mest í 9,25 prósent 2023 og 2024.
Leiðrétt: Upphaflega sagði að stýrivextir hefðu verið 7,00 prósent snemma árs en þeir voru 7,25 prósent.