Viðvörunarmiðar með mynd af Samúel Jón Samúelssyni hafa verið hengdir upp víða á Torrevieja svæðinu á Spáni, að sögn Sólarsýnar. Á miðunum er fólk hvatt til að eiga ekki viðskipti við hann. Merki Sólarsýnar birtist við hlið myndarinnar og hefur fyrirtækið nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem það hafnar öllum tengslum við Samúel og segir merkið hafa verið notað án leyfis.
Samúel rak áður leigumiðlunina Sólarmegin, sem var í fréttum í september eftir að Íslendingar lýstu því að hafa greitt fyrir húsnæði á Spáni sem þeir fengu ekki afhent. Nútíminn fjallaði þá um frásagnir fólks sem sagðist hafa varað við fyrirtækinu og Samúel áður, en viðvörunum þess verið eytt úr Facebook hópum Íslendinga á Spáni.
„Ekki eiga viðskipti við þennan mann“
Á ljósmynd af einum miðanna sést viðvörun á ensku með fyrirsögninni: „Ekki eiga viðskipti við þennan mann!“
Þeir sem prentuðu miðann segjast hafa verið sviknir af Samúel. Í textanum er því haldið fram að hann lofi fólki frá Íslandi orlofsíbúðum, taki við peningum þess og standi síðan ekki við það sem lofað var.
Fólk er hvatt til að sýna mikla varúð, senda honum ekki peninga og eiga ekki viðskipti við hann eða fyrirtæki hans. Undir ljósmyndinni af honum er merki Sólarsýnar.
Sólarsýn hafnar öllum tengslum
Yfirlýsing Sólarsýnar var birt af Guðfinni Friðrikssyni í Facebook hópnum Íslendingar á Spáni. Þar er tekið sérstklega fram að Samúel hafi aldrei starfað fyrir fyrirtækið.
„Við viljum taka skýrt fram: þessi einstaklingur er ekki og hefur aldrei verið starfsmaður, samstarfsaðili eða fulltrúi Sólarsýnar og tengist fyrirtækinu okkar ekki á neinn hátt,“ segir í yfirlýsingunni.
Sólarsýn segir jafnframt að Sólarmegin sé ekki lengur starfandi og hafi aldrei tengst Sólarsýn.
„Nafnið okkar var notað á miðanum án vitundar okkar eða leyfis. Sólarsýn bjó hvorki til, samþykkti né dreifði þessum miða og tekur ekki afstöðu til þess sem þar kemur fram.“
Sagðist ætla að endurgreiða fólkinu
Samúel sagði við RÚV í september að fyrirtæki hans væri komið í þrot. Hann sagðist vinna að því að aðstoða Íslendinga sem hefðu þegar greitt fyrir leiguhúsnæði og að til stæði að endurgreiða þeim leiguverðið.
Sólarsýn áréttar nú að allar bókanir og greiðslur hjá fyrirtækinu fari eingöngu í gegnum opinberar leiðir þess og þakkar þeim sem létu vita af miðunum.
„Ef þú ert í vafa um hvort þú sért í samskiptum við okkur, hafðu samband beint.“

