Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en eftir nóttina voru sex vistaðir í fangageymslu lögreglunnar.
Í miðborg Reykjavíkur voru þrír handteknir fyrir fíkniefnamisferli. Þeir voru vistaðir í fangageymslu og er málið í rannsókn. Þá var tilkynnt um líkamsárás með minniháttar meiðsli í miðborginni en gerandi er ókunnur.
Lögreglan hafði afskipti af ökumönnum sem til að mynda óku of hratt. Einn þeirra mældist á 117 kílómetra hraða á götu þar sem hámarkshraðinn er 80 kílómetrar á klukkustund. Hún hafði einnig afskipti af ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.