Þetta segir hin tvítuga Unnur Borg Ólafsdóttir í fyrsta þættinum af Ung og upprennandi þar sem við kynnumst unga fólkinu okkar sem er að ryðja sér til rúms um þessar mundir. Innslagið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Við hittum hina einu sönnu Unni Borg í því skyni að ræða við hana á einlægu nótunum. Unnur hefur skotist upp á stjörnuhimininn hér á landi síðustu misseri. Hún vakti fyrst athygli fyrir myndskeið á samfélagsmiðlum en síðan þá hefur hún gefið út tónlist og sitt eigið tímarit.
Það má segja að líf Unnar hafi tekið stakkaskiptum en hún vann fyrir ári síðan hjá Steyputstöðinni en gerir nú bara það sem hún vill að eigin sögn.
„Það er allt búið að breytast, bókstaflega allt. Ég er búin að flytja, ég er hætt í vinnunni og komin í aðra vinnu. Rútínan mín líka, núna er ég bara að vinna um kvöldin. Ég er ekkert að vinna klukkan sjö, nei átta á morgnanna.“
Hún segir það valdeflandi að þurfa ekki að vakna við vekjaraklukku á morgnanna og byrjar hvern dag á því að ryksuga. Hún segist finna fyrir frægðinni á hverjum degi.
„Mér finnst það bara geðveikt. Aðdáendur mínir eru geggjað sæt. Það er enginn ljótur sem er aðdáandi minn. Ég er mjög stolt af því. Fallegt fólk elskar fallegt fólk.“
Unnur hóf að gefa út tímaritið UB Exclusive í apríl. Hún lýsir því sem listrænu og erótísku tímariti. Fyrsta útgáfan kom út undir nafninu: Ég og dýrin sem ég ímynda mér. Reksturinn gangi vel.
„Ég er svo stolt af mér að hafa gert þetta. Ég er meistari. Þetta er náttúrulega nektartímarit en þetta er list skilurðu, fyrst og fremst. Þetta er meira tís heldur en pussy out. Þetta er ekki þannig. Mér finnst bara kvennmannslíkaminn svo fallegur. Ég hef alltaf verið dálítið fáklædd og eitthvað þannig. Ég elska líkamann minn mjög mikið. Mér finnst eins og allir ættu að vera það. Þannig ég er bara að reyna að sýna fólki það, að elska sjálfa sig. Þetta er líka easy money, fyrst og fremst. En þetta er list.“
Og hvað fannst vinum þínum og fjölskyldu um það þegar þú byrjaðir með þetta?
„Vinum mínum er alveg sama. Þau eru bara að styðja mig. Þetta kom mömmu ekkert á óvart að ég væri að gera þetta. Pabbi segir mér alveg að hætta þessu.“
Já, hann er ekki hrifinn af þessu?
„Nei en ég orðin tvítug svo hann getur ekki sagt neitt.“