Rússnesk stjórnvöld hafa gert lítið úr fréttum af því að starfsmaður á rannsóknarstofu í Irkutsk-héraði í Síberíu hafi látist af völdum plágu, nánar tiltekið lungnapestar. Þetta herma heimildir fréttaveitunnar AFP.
Bæði bandarísk stjórnvöld og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hafa kallað eftir gagnsæi um tildrög þess að konan lést og hvaða aðgerðum stjórnvöld í Kreml hyggjast beita til að koma í veg fyrir mögulega útbreiðslu.
Samkvæmt fréttamiðlinum Wall Street Journal hefur utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna jafnframt áréttað við rússnesk stjórnvöld að það stríði gegn alþjóðlegri ábyrgð þeirra að deila ekki upplýsingum um atvikið.
Hvetja til gagnsæis
Tedros Adhanom Ghebreyesus framkvæmdastjóri WHO segir frá því á samfélagsmiðlinum X að stofnunin hafi kallað eftir frekari upplýsingum frá rússneskum stjórnvöldum. „Algjör og gagnsæ upplýsingamiðlun í samræmi við alþjóðaheilbrigðisreglugerðina er nauðsynleg til að skýra misvísandi upplýsingar og gefa kost á réttri greiningu á hættum sem gætu varðað almannahag,“ sagði Ghebreyesus.
Málið kom einnig til tals á blaðamannafundi Marcos Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í gær. „Það er mikilvægt að Rússland deili upplýsingum með heiminum. Það er það sem þau ættu að gera og það sem við vonum að þau geri,“ sagði Rubio á fundinum.
„Því betur sem við skiljum hvað gerðist því betri stöðu erum við í til að bregðast við. Kannski er ekkert í þessu og kannski er þetta stærra en við höldum.“ Hann bætti því jafnframt við að það væri þó óábyrgt á þessum tímapunkti að velta því fyrir sér en þess vegna sé mikilvægt að fá gögn í hendurnar.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tekur í sama streng og segir að símtal við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um málið sé á dagskrá. Bandaríkin séu tilbúin til að aðstoða Rússland ef þörf er á. Rússland virðist hafa svarað því boði með því að bjóða Bandaríkjunum aðstoð við að ná stjórn á auknum fjölda mislingatilfella í að minnsta kosti þremur ríkjum.
Nákvæm dánarorsök óstaðfest
Konan sem lést í Irkutsk var 28 ára gömul og hét Darya Shipilova en talið er líklegt að hún hafi smitast eftir að hafa í ógáti brotið tilraunaglas með lifandi bakteríum. Frá þessu greindi síberíski fréttamiðillinn Lyudi Baikala á föstudaginn.
Shipilova var lögð inn á sjúkrahús á þriðjudag og lést á fimmtudag. Nákvæm dánarorsök hennar liggur þó ekki enn þá fyrir. Aðeins hefur fengist staðfest að hún hafi dáið úr lungnabólgu en að öðru leyti er ekki vitað af hverju hún smitaðist.
AFP hefur eftir Igor Kobzev héraðsstjóra Irkutsk að engar örverur sem tengdust starfi Shipilovu hafi fundist í sýnum sem tekin voru úr henni við krufningu og að enginn af samstarfsmönnum hennar hafi leitað til læknis síðan hún lést.
Í upphaflegri fyrirsögn var talað um dauða af völdum plágu. Nákvæmara er að konan lést af völdum lungnapestar. Hún var hins vegar að rannsaka plágur á rannsóknarstofunni þar sem hún starfaði.