Þetta kemur fram í spá Veðurstofu Íslands. Yfirleitt verður hægur vindur og víða lítilsháttar skúrir eða slydduél. Lengst af verður þurrt og bjart austanlands.
Á morgun kemur næst lægð utan af Grænlandshafi og skil frá henni ganga norðaustur yfir landið. Það mun rigna víða um land, mest suðaustantil en verður úrkoman slitróttari á Norðurlandi. Hitinn verður á bilinu fjögur til tíu stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Suðaustan og austan 8-15 m/s, en 13-20 um landið suðvestanvert. Víða rigning, og sums staðar talsverð úrkoma suðaustantil, en væta með köflum á Norðurlandi. Hiti 4 til 11 stig. Lægir suðvestanlands síðdegis.
Á föstudag:
Norðaustan og norðan 8-15 og rigning á Norðaustur- og Austurlandi, talsverð úrkoma á Austfjörðum fram eftir degi. Væta með köflum annars staðar, en styttir víða upp sunnan- og vestantil kringum hádegi. Hiti 3 til 11 stig, mildast syðst.
Á laugardag:
Breytileg átt 3-10 og stöku skúrir, en rigning norðan- og austanlands fram eftir morgni. Heldur kólnandi.
Á sunnudag:
Vaxandi suðaustan- og austanátt og fer að rigna, en lengst af úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti 4 til 10 stig.
Á mánudag:
Suðaustan- og sunnanátt og rigning eða skúrir, en styttir upp á Norðurlandi. Milt í veðri.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með skúrum sunnan- og vestantil.