Gengi íslensku krónunnar, sem var sterkt fyrir, hefur styrkst enn meira í sumar og haust. Frá áramótum nemur styrkingin um 4,7% og meira en helmingurinn hefur komið fram síðan í júlí. Ein evra kostaði rúmlega 147 krónur um áramótin en stendur nú í 137 krónum – er sem sagt um 7% ódýrari – en hafa verður í huga að evran hefur almennt gefið eftir gagnvart öðrum gjaldmiðlum – stórum og smáum.
Miðað við ýmsar hagtölur hefði kannski frekar mátt búast við gengislækkun en ekki hækkun. Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, bendir meðal annars á að vöruskiptahalli – sem verður þegar meiri verðmæti eru flutt inn en eru flutt út – hafi sjaldan verið meiri. Raunar þurfi að fara aftur til ársins 2006, þegar verið var að reisa Kárahnúkavirkjun, til að finna viðlíka halla.
Innflutningur vegna gagnavera skilar sér ekki inn á gjaldeyrismarkað
Að öllu jöfnu ætti viðskiptahalli að stuðla að veikari krónu. Erna bendir á að ein helsta skýringin á að viðskiptahalli hafi ekki leitt til veikingar á krónunni sé að stór hluti af hallanum sé vegna innflutnings á búnaði fyrir gagnaver – og slíkar fjárfestingar hafi ekki sömu áhrif á gengið og til að mynda fjárfesting í stórvirkjun.
Mikil uppbygging hafi verið vegna gagnavera hér á landi. Í fyrra hafi verið fluttur inn tölvubúnaður fyrir um 170 milljarða króna. Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs hafi verið fluttur inn búnaður fyrir 115 milljarða. Kaup á þessum búnaði komi þó ekki inn á gjaldeyrismarkaðinn því það séu fyrst og fremst erlendir aðilar sem eigi þennan búnað og flytji hann hingað inn. Áhrifin á gengi krónunnar hafi því ekki verið eins mikil og fjárhæðirnar hefðu annars gefið tilefni til.
Seðlabankinn hefur keypt evrur fyrir 21 milljarð frá því í vor
Í pistli sem Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka birti á vef bankans í dag er minnt á að Seðlabankinn tilkynnti í vor að hann hæfi regluleg gjaldeyriskaup á ný eftir hlé frá í desember í fyrra. Frá 12. maí til 11. september keypti hann sex milljónir evra á viku en þá voru kaupin hækkuð í tólf milljónir evra í viku.
Þann 25. september keypti Seðlabankinn mun meira – eða sem nemur 21 milljón evra – eða fyrir 2,9 milljarða króna. Alls hafi Seðlabankinn keypt evrur fyrir um 21 milljarð króna frá því í vor.
Erna bendir á að lífeyrissjóðir hafi líka nýtt tækifærið til að kaupa erlendar eignir í miklum mæli en hvorki það né gjaldeyriskaup Seðlabankans hafi leitt til veikari krónu.
Styrking vegna kaupa á Kerecis?
Aðspurð hvort hluti skýringarinnar séu svokölluð vaxtamunarviðskipti, það er að segja að fjárfestar nýti sér háa vexti hér til að fá betri ávöxtun, segir Erna að margir ólíkir kraftar séu að verki.
Að einhverju leyti sé gjaldeyrisflæðið frá erlendum aðilum en hún geti ekkert sagt um hvort ástæðan sé vegna vaxtarmunaviðskipta. Gjaldeyrisflæðið geti líka tengst tilfallandi greiðsluuppgjörum. Ýmsir hafi velt vöngum yfir því hvort styrking krónunnar að undanförnu megi að einhverju leyti rekja til kaupa Coloplast á Kerecis en vegna þeirra þarf að greiða háa upphæð í skatta. Það tekur tíma að koma því í gegnum gjaldeyrismarkaðinn, segir hún.
Krónan lætur sér fátt um finnast
Erna segir að út frá hagkerfinu sjálfu sé gengi krónunnar ekki sjálfbært. „En krónan getur verið í alls konar ójafnvægi í langan tíma og hún lætur sér fátt um finnast um hvað við erum að segja að sé undirliggjandi, sjálfbært gengi,“ bætir hún við.
Þá hafi verð á sjávarafurðum og áli verið hátt og það hafi stutt við krónuna.
Íslendingar gleymi því oft að Ísland sé mikill útflytjandi á hrávöru, áli, fiski og fleiru. Verð á þorski sé í hæstu hæðum um þessar mundir og því skili fleiri krónur sér í kassann þrátt fyrir minni kvóta. Þá hafi útflutningsverðmæti áls aukist, þrátt fyrir að minna magn hafi verið framleitt vegna bilunar hjá Norðuráli á Grundartanga.
Raungengið aldrei hærra en spá veikingu á næstu árum
Í þjóðhagsspá Íslandsbanka sem kom út fyrir viku er því spáð að gengi krónunnar verði 4% veikara árið 2028 en það er núna. Erna og félagar í greiningardeild Arion banka gáfu út sína spá daginn eftir sem er á svipuðum nótum. Krónan verði þó áfram sterk út næsta ár.
Erna bendir á að raungengi krónunnar, sem er mælt með því að leiðrétta fyrir verðlagi á Íslandi og í helstu viðskiptalöndum okkar, sé í hæstu hæðum. Miðað við launakostnað hafi raungengið aldrei verið hærra. Þar með minnki samkeppnishæfni íslenska hagkerfisins og hún óttast að það leiði til minni eftirspurnar eftir íslenskum afurðum, hingað komi færri ferðamenn o.s.frv. Möguleg minnkandi eftirspurn hafi þó ekki komið fram í hagtölum enn sem komið er.
Sama leiðin valin í 100 ár – að lækka gengið
Erna bendir á að raungengið sé á svipuðum stað og fyrir fjármálakreppuna sem hófst 2008. Aðeins séu tvær leiðir til að lækka raungengið og bæta aftur samkeppnisstöðu íslenska hagkerfisins: að vera með lægri verðbólgu og minni launahækkanir en nágrannalöndin eða lækka gengið. „Þú getur farið 100 ár aftur í tímann og við höfum alltaf valið sömu leiðina sem er að veikja gengi krónunnar,“ segir hún.
Við höfum rætt um áhrifin á útflutningsgreinar en hvað um áhrif á innflutning? Hefur verð á innfluttum vörum lækkað í samræmi við styrkingu krónunnar?
„Já, við höfum séð það, nýjasta dæmið sem við höfum fengið núna er nýir bílar,“ segir Erna og bætir við að styrking gengisins hafi sitt að segja varðandi yfirlýsingar verslana um að þær ætli að frysta verð eða lækka það. Lækkandi innflutningsverð sé að einhverju leyti byrjað að skila því. „Sem er jákvætt því við erum í viðkvæmri stöðu varðandi kjarasaminga og vinnumarkaðinn akkúrat núna,“ segir Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka.