Þessu lofaði ríkisstjórnin til að tryggja að kjarasamningar héldu
Skuldsett heimili gætu fengið samtals þrjá milljarða króna í vaxtabætur ef ársverðbólga fer yfir fimm prósent í lok október 2027.
Ríkisstjórnin hefur heitið því að halda hækkunum opinberra gjalda innan 2,5 prósenta á næsta ári, styrkja barnabótakerfið, setja skorður við hækkunum húsaleigu og greiða skuldsettum heimilum sérstakar vaxtabætur ef verðbólga verður áfram mikil. Þetta er meðal þeirra aðgerða sem Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, greinir frá í færslu á Facebook.
Starfsgreinasambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn náðu í gærkvöldi samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að framlengja gildandi kjarasamninga. Enn ríkir hins vegar óvissa um framhald samninga VR, Landssambands verzlunarmanna og Fagfélaganna.
Samkomulagið kemur í kjölfar þess að ríkisstjórnin samþykkti aðgerðir sem ætlað er að styðja við forsendur kjarasamninganna og skapa skilyrði fyrir hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lagði aðgerðirnar fyrir ríkisstjórnina.
Yfirlýsing frá stjórnvöldum um aðgerðirnar hefur enn ekki verið birt opinberlega og því liggur ekki fyrir nákvæmlega hvernig einstök fyrirheit eru orðuð eða hvaða skilyrði kunna að fylgja þeim. Vilhjálmur greinir hins vegar ítarlega frá efni …