Það rigndi meira á landinu en yfirleitt í septembermánuði, nema á suðvesturhorninu. Nokkrar skriður féllu á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suður- og Suðausturlandi. Loftþrýstingur var óvenjulágur.
Þetta kemur fram í samantekt Veðurstofunnar yfir tíðarfar í september.
Hiti rétt yfir meðallagi víðast
Meðalhiti á landinu var 8,0 stig og var rétt yfir meðallagi um næstum allt land. Á nokkrum stöðum á Norðausturlandi var hitinn lítillega undir meðallagi. Hæstur hiti mældist í Bakkagerði á Borgarfirði eystra. Þar var hann 22,5 stig áttunda september.
Mestur hiti að jafnaði var á Steinum undir Eyjafjöllum, eða 10,2 stig. Lægstur var hann á Þverfjalli, eða 2,2 stig. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Möðrudal eða 5,6 stig.
124 sólskinsstundir í Reykjavík
Rigning var yfir meðallagi á stærstum hluta landsins. Á suðvesturhorninu var hún þó minni.
Í Reykjavík mældust 123,9 sólskinsstundir í september. Það er meira en fimm stundum yfir meðallagi. Á Akureyri voru sólskinsstundir einnig yfir meðallagi eða 94,3.
Það rigndi mikið í lok mánaðarins, sérstaklega síðustu vikuna. Það átti sérstaklega við um Vestfirði, Austfirði, Suðausturland, Suðurland og Miðhálendinu. Í þeim landshlutum var eitthvað um skriðuföll og grjóthrun.
Loftþrýstingur var óvenjulega lágur. Aðeins einu sinni frá árinu 1820 hefur meðalloftþrýstingur mælst minni í september. Það var í september 2011 þegar hann var örlítið lægri en í síðasta mánuði.