Enn er óráðið hver niðurstaðan verður í kjaradeilu VR og fagfélaganna við SA. Fulltrúar þeirra ræddu saman í gær og stefnt er á frekari fundahöld í dag. Þá gæti ráðist hvort félögin segi samningunum upp, líkt og þau fengu heimild til á mánudag, eða hvort þeir gildi áfram.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir ekkert ráðið um hvað fundir dagsins leiði af sér. Það sé mikilvægt að félagsfólk VR þurfi ekki að taka á sig fleiri launalækkanir. Samningur sem Breiðfylkingin undirritaði í gær sé ekki í takt við áherslur VR.
Hún voni að SA mæti lausnamiðuð til leiks enda sé engum í hag að stefna öllu í upplausn á vinnumarkaði.
Þurfa tryggingar fyrir sitt fólk
Það er náttúrulega mjög sérstakt að við erum búin að sitja hérna tilbúin síðan í lok ágúst, þegar þessi forsendubrestur lá fyrir, til samtals um einhverjar raunverulegar lausnir. Við erum með þann veruleika að það eru stórir hópar innan okkar félaga sem hafa tekið á sig launalækkanir og við viljum snúa þeirri braut við eðlilega.
Þessir samningar voru gerðir til þess að ná niður verðbólgu og vöxtum og við höfum ekki verið sannfærð um það að með því að gera það nákvæmlega sama aftur þá verði einhver ný niðurstaða í verkefninu. Þannig að við þurfum að fá einhverjar tryggingar inn fyrir okkar fólk. Ég hélt reyndar í gær að það væri kominn ákveðinn rekspölur á það en það samkomulag sem var gert í gær er ekki með neinum slíkum tryggingum.
Forsætisráðherra reynt að skera SA úr snörunni
Aðkoma stjórnvalda, og einkum forsætisráðherra, átti stóran þátt í að samningar náðust í gær. Aðspurð segir Halla VR eiga í mjög góðu samtali við forsætisráðuneytið.
„Forsætisráðherra hefur verið að beita sér fyrir lausnum í þessu máli og kannski að mínu mati að einhverju leyti að reyna að skera Samtök atvinnulífsins úr snörunni vegna þess að þau hafa ekki verið tilbúin til að taka þátt í þessu verkefni með okkur að okkar mati.“
Það breyti því þó ekki að kjarasamningurinn sé við Samtök atvinnulífsins, ekki stjórnvöld.
„Það er ekkert hægt að ganga frá borði fyrr en við höfum náð að ljúka því samtali sem okkur ber að eiga vegna forsendubrests í kjarasamningum.“