Breiðfylkingin á íslenskum vinnumarkaði, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, náði í gærkvöld samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að kjarasamningar gildi áfram.
Meðal forsenda fyrir því er að ríki og sveitarfélög takmarki gjaldskrárhækkanir við 2,5 prósent og að Samtök atvinnulífsins hvetji aðildarfyrirtæki sín til að halda aftur af verðhækkunum. Einnig ætlar ríkisstjórnin að leggja fram tvö frumvörp um réttindi launafólks, hækka barnabækur og takmarka hækkanir á húsaleigu.
VR og fagfélögin eiga enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Þar er samkomulag ekki í höfn. Verkalýðsfélögin hafa krafist kjarabóta eða úrbóta fyrir það félagsfólk sitt sem hefur hækkað minna í launum en sem nemur verðbólgu. Samtök atvinnulífsins hafa lýst því yfir að þau samþykki ekki meiri útgjöld en þegar hafi verið samið um 2024.
Góðan dag og velkomin á fréttavakt þar sem við fylgjumst með framvindu kjarasamninga og leitum viðbragða við ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum.
Á morgun rennur út frestur til að segja upp kjarasamningum. Breiðfylking Starfsgreinasambandsins, Eflingar, Samiðnar og Byggiðnar gekk í gærkvöld frá samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að samningum yrði ekki sagt upp þó að verðbólga hafi verið það mikil í september að forsendur samningsins brustu.
VR og fagfélögin eiga enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins og ekki er orðið ljóst hvort samkomulag næst áður en fresturinn til að segja upp samningum rennur út á morgun.