Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

Rúmgott og vel skipulagt raðhús við Hraunbæ 7 í Árbænum í Reykjavík hefur verið sett á sölu. Ásett verð er 135,9 milljónir króna en húsið var reist árið 1967. Húsið er eitt af fáum raðhúsum í Hraunbænum en langstærstur hluti íbúa í götunni búa í fjölbýli.
Eignin er samtals 165,3 fermetrar að stærð og þar af er 22 fermetra bílskúr. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og því ætti eignin að henta vel fyrir fjölskyldufólk.
Komið er inn í forstofu sem leiðir að björtu og opnu alrými. Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með stórum gluggum og þaðan er útsýni yfir pall og garð. Eldhúsið er bjart og vel skipulagt, með ljósri innréttingu, dekkri efri skápum og granítborðplötum. Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottahús og geymsla.
Í húsinu eru fjögur svefnherbergi en léttur veggur skilur tvö þeirra að og býður því skipulagið upp á nokkurn sveigjanleika. Baðherbergið var endurnýjað fyrir um áratug og auk þess er gestasalerni við forstofu.
Við húsið er stór, lokaður og skjólgóður pallur með heitum potti og gróðri. Eigninni fylgir einnig bílskúr með nýlegri hurð.
Í sölulýsingu kemur fram að á næstu árum megi gera ráð fyrir viðhaldi á þaki og endurnýjun þakkants.