Tveir fangaverðir eru grunaðir um að hafa gengið í skrokk á fanga í Vestre-fangelsinu í Kaupmannahöfn. Fangaverðirnir eru báðir frá Kosovo. Þeir eru í starfsþjálfun í Danmörku vegna áforma stjórnvalda um að láta Kosovo sjá um afplánun fanga af erlendum uppruna sem hlotið hafa dóma í Danmörku.
Fangaverðirnir eru grunaðir um að hafa barið fangann í andlitið og búkinn. Þeir neita sök.
Dönsk stjórnvöld hafa samið við ráðamenn í Kosovo um að leigja þar fangaklefa og kaupa þjónustu erlendra yfirvalda. Hugmyndin er að senda fanga þangað til afplánunar. Það eru fangar frá löndum utan Schengen-svæðisins. Þau áform hafa verið umdeild í Danmörku.
Fangaverðir frá Kosovo sem eiga að gæta fanganna frá Danmörku þegar þeir afplána dóma í Kosovo þurfa að starfa í Danmörku um hálfs árs skeið. Það er til að þeir læri á þær reglur sem gilda um afplánun fanga, gæslu þeirra og réttindi.
Danska ríkisútvarpið greindi frá þessu. Það hefur eftir Nicolai Wammen dómsmálaráðherra að hann taki málið mjög alvarlega, það hafi verið sent lögreglu og fari sína leið í réttarkerfinu.