Fundurinn átti að hefjast klukkan 9:15 og voru fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mættir rétt rúmlega það.
Fylkingarnar áttu einnig fund í gærmorgun og sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í samtali við Vísi í morgun að þar hefði VR lagt fram tillögur að lausnum í kjaradeilunni. Þá hafði hún vonast eftir öðrum fundi eftir hádegi til að halda áfram að vinna úr lausnunum og biðu fulltrúarnir frá því klukkan eitt þar til seint síðdegis.
Fulltrúar SA létu hins vegar ekki sjá sig.
Seint í gærkvöldi undirrituðu Starfsgreinasamband Íslands, Efling og Samiðn samkomulag um að framlengja kjarasamningana út næsta ár.
„Ég held að allir átti sig á mikilvægi þess að það er ávinningur allra að kjarasamningar haldi lífi í stað átaka, sem kæmu upp á sama tíma og atvinnuleysi eykst og það þrengir að sökum hækkandi verðbólgu og vaxtastigs,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, í samtali við Vísi.
Forsendur Stöðugleikasamninganna svokölluðu brustu í ágúst þegar verðbólgan mældist 5,6 prósent. Með því máttu allir sem koma að kjarasamningunum slíta honum en fresturinn rennur út klukkan fjögur síðdegis á morgun. VR fékk heimild frá trúnaðarmönnum og samninganefndum fyrr í vikunni til að segja upp kjarasamningum.