Rússar gerðu umfangsmiklar eldflauga- og drónaárásir á Kænugarð og fleiri staði í Úkraínu í nótt og í morgun, sama dag og Vladimír Pútín Rússlandsforseti fagnar 74 ára afmæli sínu. Að minnsta kosti tólf eru sagðir hafa látið lífið í árásunum.Úkraínsk leyniþjónusta hafði varað við því fyrirfram að Rússar kynnu að gera stórfelldar árásir á afmælisdegi Pútíns og Volodímír Selenskí Úkraínuforseti sagði í ávarpi í gærkvöldi að nýjar leyniþjónustuupplýsingar bentu til þess að umfangsmikil árás væri í undirbúningi.Viðvaranirnar reyndust á rökum reistar.
Blóðugur afmælisdagur Pútíns – Rússar létu eldflaugum rigna yfir Úkraínu