Minnst 19 voru drepnir þegar Rússar gerðu árásir víða í Úkraínu í nótt. Af þeim voru 13 drepnir þegar fjölbýlishús var sprengt í bænum Pryluky, sem er í Chernigiv-héraði austan við Kyiv. Tveir voru drepnir í Kyiv.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu varaði í gær við því að Rússar undirbyggju umfangsmiklar árásir sem beint væri gegn orkumannvirkjum. Þetta yrðu með verstu árásum á þeim hátt í fimm árum sem stríðið hefur staðið. Árásir hafa þegar aukist í Kyiv sem hefur alltaf gerst á þessum árstíma meðan á stríðinu hefur staðið. Tilgangurinn er að gera íbúum erfitt fyrir að hita hús sín þegar kólna fer í veðri.
Í nótt var minnst 50 eldflaugum og 130 drónum skotið að fjölda héraða í Úkraínu. Hluti þeirra var skotinn niður en Zelensky segir erfiðast að ráða við sprengjuflaugarnar og nauðsynlegt sé að fá nýjar loftvarnir til þess.
ESB gagnrýnir árásir
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, gagnrýndi árásir Rússa harðlega í yfirlýsingu í morgun. „Rússar fylgja áætlun sem byggir á ógnum. Þeir reyna að gera líf Úkraínumanna sem vilja frið óbærilegt,“ segir hún.
Hún tilkynnti jafnframt að 1,2 milljarðar evra til viðbótar yrðu settir í dróna og eldflaugar fyrir Úkraínu. Þá hefur framkvæmdastjórn ESB samþykkt viðskiptaþvinganir á hátt í 1.600 einstaklinga og lögaðila í Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu. Þvinganirnar beinast einkum að rússneska hernum og vopnaframleiðslu. Þær verða innleiddar formlega á fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsins á mánudaginn.