Dómari dró handtökuskipunina til baka tímabundið á meðan hann tekur afstöðu til þess hvort að Puigdemont eigi að hljóta sakaruppgjöf á grundvelli fordæmis sem var sett í máli annars katalónsks ráðherra árið 2024.
Puigdemont flúði til Belgíu eftir atkvæðagreiðsluna sem héraðsstjórn Katalóníu, sem hann var í forsæti fyrir, hélt árið 2017 um að skilja sjálfstjórnarhéraðið frá Spáni í trássi við vilja landsstjórnarinnar og niðurstöðu stjórnlagadómstóls Spánar.
Hann komst hjá því að vera framseldur til Spánar í krafti stöðu sinnar sem Evrópuþingmaður.
Fjöldi annarra katalónskra stjórnmálamanna sem stóðu að atkvæðagreiðslunni hlutu fangelsisdóma.
Spænska þingið samþykkti naumlega að veita þeim sakaruppgjöf árið 2024. Það gerði þingið að tillögu minnihlutastjórnar Pedro Sánchez forsætisráðherra sem þurfti að reiða sig á stuðning Junts, stjórnmálaflokks Puigdemont, til þess að verja stjórn sína falli.
Greiddu atkvæði gegn stóru máli ríkisstjórnarinnar
Puigdemont lýsir ákvörðun spænska dómarans nú sem ósigri spænska ríkisins. Hún væri þó ekki lausn á ágreiningi spænsku landsstjórnarinnar og katalónsku héraðsstjórnarinnar.
Sánchez forsætisráðherra boðaði til skyndikosninga í kjölfar þess að þingmenn Junts greiddu atkvæði gegn húsnæðisfrumvarpi ríkisstjórnarinnar ásamt stjórnarandstöðunni í síðustu viku. Mikil mótmæli hafa geisað á Spáni vegna húsnæðiskreppu þar.
Þingkosningarnar fara fram 29. nóvember og segir evrópska blaðið Politico að endurkoma Puigdemont til Spánar gæti orðið að stóru kosningamáli.