Embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta fara fram á það að prentaður verði 250 dala seðill sem prýði andlit Trumps.
Þetta sögðu fjórir embættismenn við The Washington Post en þetta yrði í fyrsta sinn í meira en 150 ár sem lifandi manneskja prýðir bandarískan seðil.
Bætti fánanum við
Listamaðurinn Alexander Ian hefur hannað hugmynd að seðlinum í samráði við Donald Trump. Hann sagði að Trump hefði breytt upprunalegri hönnun lítillega, þar á meðal bætti hann við bandaríska fánanum til að minnast 250 ára afmælis landsins.
„Honum finnst gaman að kalla mig sinn uppáhalds breska listamann,“ sagði Ian.
Sótt hefur verið um undanþágu
Engin lifandi manneskja hefur birst á bandarískum gjaldmiðli síðan 1866, þegar það var bannað með lögum eftir að mynd af nokkuð óþekktum embættismanni fjármálaráðuneytis Bandaríkjanna birtist á 5 senta seðli.
Sóst hefur verið eftir undanþágu frá þessum lögum í tilefni stórafmælisins.