Vill niðurskurð hjá Evrópusambandinu
Þýskalandskanslari lýsir áhyggjum af litlum metnaði í ESB og vill „niðurskurð á öllum sviðum“. Hann deilir á fyrirhugaðan Evrópuskatt á stórfyrirtæki.
Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í dag að ESB þyrfti að spara hundruð milljarða evra og sýna meiri „metnað“ í samkeppnishæfni nú þegar samningaviðræður um fjárlög sambandsins fyrir árin 2028–2034 eru hafnar.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til tveggja billjóna evra (286 billjónir króna) útgjaldaáætlun fyrir það tímabil en Þýskaland og önnur aðildarríki hinnar svokölluðu „sparsömu“ fylkingar innan ESB hafa gert ljóst að þetta sé of há upphæð.
„Við þurfum fjárlagatillögu með niðurskurði á öllum sviðum sem nemur nokkur hundruð milljörðum evra,“ sagði Merz á blaðamannafundi ásamt Micheal Martin, forsætisráðherra Írlands, sem nú fer með formennsku í ESB.
Merz sagði að „við höfum ekki efni á ofsafengnum útgjaldaaukningum“ á sama tíma og verið er að treysta fjárlög á landsvísu.
Martin sagði að sambandið þyrfti fjárlög „sem uppfylla framtíðarþarfir þess og metnað“ en „endurspegla um leið núverandi efnahagsástand“ og bætti við að Írland myndi vinna að „málamiðlun“.
„Írland hefur sett það …